Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, segir nýfallinn dóm Héraðsdóms Reykjavíkur sem fjallar um hið svokallaða plastbarkamál sérlega harðan, þá sérstaklega í garð Tómasar Guðbjartssonar læknis.
Í dóminum var íslenska ríkið dæmt bótaskylt gagnvart ekkju mannsins sem fékk ígræddan plastbarka árið 2011 og lést þrjátíu mánuðum síðar, og þriggja sona þeirra hjóna.
Málið var eingöngu höfðað til viðurkenningar á bótaskyldu íslenska ríkisins en ekki var fjallað um fjárkröfurnar.
„Dómurinn snýst náttúrulega fyrst og fremst um það hvort það eigi að greiða ekkjunni bætur og við höfðum leitað eftir því að það yrði samið við ekkjuna, en því var synjað af hálfu yfirvalda. Þess vegna fór málið fyrir dóm og ég hef áður sagt að það hefði mátt standa betur að því hvernig farið var með tilvísun Andemariams Beyene til Karólínska sjúkrahússins en það breytir því ekki að sökin á öllu saman er fyrst og fremst þar,“ segir Runólfur við mbl.is.
Bætir hann við að honum þyki eðlilegt að ekkja mannsins fái greiddar bætur, bæði hér á landi og í Svíþjóð, fyrst og fremst þar.
Töldu heppilegast að semja við ekkjuna
Spurður út í framhaldið segir hann málið fyrst og fremst eiga heima hjá ríkislögmanni, fyrir hönd íslenska ríkisins.
„Þetta verður ekki okkar ákvörðun á endanum frekar en að við töldum náttúrulega að það hefði verið langheppilegast að semja um bætur við ekkju mannsins, en það var ekki orðið við því.“
Tómas Guðbjartsson læknir, sem tók þátt í aðgerðinni, þar sem plastbarki var græddur í Beyene, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann sagði að í rökstuðningi Héraðsdóms Reykjavíkur væri ekki einungis að finna alvarlegar rangfærslur um atvik málsins, heldur einnig ærumeiðandi fullyrðingar um persónu hans, meintar hvatir og meintan ásetning, án þess að hann hafi fengið tækifæri til andsvara.
Hann telur óhjákvæmilegt að dómnum verði áfrýjað.
Óvissa með áframhaldandi störf Tómasar
Tómas hefur verið í leyfi frá störfum á Landspítalanum vegna málsins um tíma, en Runólfur segist ekki geta sagt til um það á þessari stundu hvert framhaldið verður með störf hans.
„Ég get ekkert í rauninni sagt til um hvernig því verður háttað en það á líka eftir að koma í ljós hvort að þessum dómi verður áfrýjað eða ekki og hver niðurstaðan yrði þá ef svo færi. Þannig ég held við bara bíðum átekta með það,“ segir hann.
„Ég held það sé bara best að fara rólega í sakirnar í þessu, en það á eftir að rýna í þetta mál að nýju í ljósi þessarar niðurstöðu og ég get ekkert sagt á þessu stigi hver sú niðurstaða verður.“