Ægir Þór Eysteinsson, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, staðfestir þetta í svari við fyrirspurn Vísis en segir ekki hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Íslensk stjórnvöld hafa átt í samstarfi um þróunarsamvinnu í Síerra Leóne síðan 2018. Fyrstu verkefni íslenskra stjórnvalda voru unnin í samstarfi með þarlendum stjórnvöldum og Alþjóðabankanum. Árið 2023 hélt útsent starfsfólk til starfa og var sendiráðið opnað formlega í maí 2024.