Hávær fagnaðarlæti brutust út á Evrópuþinginu í Strassborg í dag eftir að þingið samþykkti umfangsmiklar breytingar á reglum Evrópusambandsins um brottvísun ólöglegra innflytjenda og hælisleitenda sem hafa fengið synjun.
Myndskeið frá atkvæðagreiðslunni hefur farið víða á samfélagsmiðlum. Þar sjást hægrisinnaðir þingmenn rísa úr sætum sínum og hrópa ítrekað „Send them back“ eða „Sendið þá til baka“, á meðan andstæðingar lagabreytingarinnar svöruðu með köllum á borð við „Shame on you“ eða „Skammist ykkar“.
Reglugerðin var samþykkt með 418 atkvæðum gegn 218, en 30 þingmenn sátu hjá. Hún er talin marka eina stærstu stefnubreytingu Evrópusambandsins í innflytjendamálum frá flóttamannakreppunni árið 2015.
Lengri varðhaldsvist og brottvísunarmiðstöðvar utan Evrópu
Samkvæmt nýju reglunum verður auðveldara fyrir aðildarríki að vísa úr landi einstaklingum sem ekki hafa lagalegan rétt til dvalar innan sambandsins.
Meðal þess sem reglugerðin felur í sér eru auknar skyldur innflytjenda til að vinna með yfirvöldum við brottför, auk þess sem aðildarríki fá heimild til að halda fólki í varðhaldi í allt að 24 mánuði og í sumum tilvikum lengur.
Jafnframt verður heimilt að koma á fót svokölluðum „return hubs“ eða brottvísunarmiðstöðvum í ríkjum utan Evrópusambandsins. Þar gætu einstaklingar sem hafa fengið synjun á hælisumsókn dvalið á meðan unnið er að endanlegri brottvísun þeirra.
Stuðningsmenn breytinganna segja að núverandi kerfi hafi brugðist. Samkvæmt upplýsingum frá Evrópusambandinu skili aðeins lítill hluti þeirra sem fá brottvísunarákvörðun sér í raun úr álfunni og því hafi skapast mikill trúverðugleikavandi í innflytjendastefnu sambandsins.
Deilt um mannréttindi og áhrif laganna
Andstæðingar reglugerðarinnar segja hins vegar að með henni sé verið að veikja réttindi hælisleitenda og opna á brottvísanir til þriðju ríkja sem einstaklingarnir hafi jafnvel aldrei komið til áður.
Mannréttindasamtök og vinstrisinnaðir þingmenn hafa gagnrýnt sérstaklega hugmyndina um brottvísunarmiðstöðvar utan Evrópusambandsins og segja hana geta leitt til þess að ábyrgð á fólki sem leitar verndar verði flutt út fyrir landamæri sambandsins.
Fagnaðarlæti og slagorð í þingsalnum eftir atkvæðagreiðsluna undirstrikuðu jafnframt hversu djúpstæðar deilurnar eru orðnar um innflytjendamál innan Evrópu. Á sama tíma og sumir þingmenn fögnuðu því sem þeir kölluðu endurheimt stjórnvalda á landamærum sínum, sögðu aðrir að Evrópuþingið hefði stigið hættulegt skref í átt að harðari og mannúðarsnauðari stefnu.
„Send Them Back“ chants ring out as the EU passes a mass deportations directive. New ringtone: pic.twitter.com/ZaH8k02yxl
— End Wokeness (@EndWokeness) June 17, 2026