Í dómi þess efnis, sem kveðinn var upp í gær, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum, með því að hafa sett sig í samband við stúlku, sem þá var 15 ára gömul, í gegnum samskiptaforritið Snapchat og viðhaft kynferðislegt tal við hana með því að senda henni mynd sem á stóð „riða i kvöld?“ og mynd af kynfærum karlmanns í fullri reisn.
Hann hafi gengist við háttseminni en mótmælt fram kominni bótakröfu, upp á eina milljón króna, sem of hárri.
Þá hafi matsmaður verið dómkvaddur til þess að framkvæma skoðun á þroska, hugarfari, hvötum og andlegu heilbrigði mannsins en einnig til þess að leggja mat á andlegt atgervi hans og andlega stöðu að öðru leyti og ákvæði hegningarlaga um ósakhæfi ættu við vegna sakargiftanna. Niðurstaða hans hafi verið að maðurinn sé sakhæfur og að refsing gæti borið árangur.
Maðurinn hafi því verið dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundins fangelsis og greiðslu 400 þúsund króna miskabóta til handa stúlkunni. Þá greiði hann allan sakarkostnað málsins, 1,9 milljónir króna.