Landsframleiðsla jókst um 2,7% á milli ára að raunvirði á fyrsta fjórðungi ársins, samkvæmt fyrsta mati Hagstofunnar.
Að því er segir í tilkynningu Landsbankans var hagvöxturinn að stórum hluta drifinn af jákvæðu framlagi utanríkisviðskipta. Þá skiluðu miklar fjárfestingar í gagnaverum á síðasta ári neikvæðu framlagi utanríkisviðskipta til hagvaxtar í fyrra vegna töluverðs innflutnings á tölvubúnaði.
Viðsnúningurinn í framlagi utanríkisviðskipta skýrist því bæði af minni innflutningi á tölvubúnaði en einnig af því að gagnaverin eru farin að skila umtalsverðum vexti í þjónustuútflutningi. Samdráttur í fjárfestingu skýrist einnig að miklu leyti af minni fjárfestingu gagnavera á fjórðungnum borið saman við fyrsta fjórðung í fyrra.
Aukning í kaupum heimilanna
Einkaneysla jókst um 2,2% á fjórðungnum og er því um nokkuð hægari vöxt að ræða en á síðasta ári þegar einkaneysla jókst í heild um 4,3%.
Aukning var í kaupum heimilanna á bifreiðum á fjórðungnum, þótt nýskráningar fólksbíla til einstaklinga hafi dregist saman um 14%.
Þá var vöxtur í einkaneyslu vegna útgjalda Íslendinga í ferðalög erlendis. Þetta kemur á óvart þar sem utanlandsferðir Íslendinga drógust saman um 7% á milli ára á fjórðungnum, samkvæmt talningu Ferðamálastofu.
Þá gæti hluti af skýringunni verið að Íslendingar nýti sér erlenda netverslun í auknum mæli, en kortavelta Íslendinga í heild jókst í takt við vöxt einkaneyslunnar.
Útflutningur í heild jókst um 1%
Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar var jákvætt um 5,3% sem er algjör viðsnúningur frá síðasta ári.
Jákvætt framlag skýrist að stærstum hluta af samdrætti í vöruinnflutningi, en sem fyrr segir var töluvert minna flutt inn af tölvubúnaði í tengslum við gagnaver en á sama tíma í fyrra, sem skýrir samdráttinn að stórum hluta.
Útflutningur í heild jókst um 1% þar sem vöruútflutningur dróst saman um tæp 4% en þjónustuútflutningur jókst um tæp 7%. Vöxtur þjónustuútflutnings skýrist að mestu af auknum umsvifum gagnavera hér á landi. Mikil fjárfesting í gagnaverum í fyrra er því að skila sér nokkuð hratt í vexti útflutnings.
Samdrátt vöruútflutnings má meðal annars rekja til minni álframleiðslu vegna bilunar í álverinu á Grundartanga.