Segir Vilhjálm ekki byrja vel - „Tók nýi bæjarstjórinn niður fána Reykjanesbæjar til að flagga íslenska fánanum“ - DV

Oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar gagnrýnir starfshætti Vilhjálms Árnasonar sem ráðinn var bæjarstjóri í gær. Gagnrýnir oddvitinn eins og oddviti Framsóknarflokksins að ekki hefði áður verið gengið frá ráðningarsamningi við Vilhjálm en einnig að nýi bæjarstjórinn hafi á fundinum beitt sér fyrir breytingu á bæjarmálasamþykkt án þess að bera það undir minnihlutann. Furðar oddvitinn sig einnig á því að Vilhjálmur hafi að loknum fundi bæjarstjórnar farið út úr ráðhúsinu og dregið fána bæjarins niður af flaggstöng sem þar er en dregið í staðinn upp íslenska fánann. Vilhjálmur vakti raunar sérstaklega athygli á því að hann hefði dregið íslenska fánann að húni að fundinum loknum.

Guðný Birna Guðmundsdóttir er oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Flokkurinn var í meirihluta á síðasta kjörtímabili en er nú í minnihluta. Í nýrri Facebook-færslu gagnrýnir Guðný Birna eins og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir oddviti Framsóknarflokksins, sem einnig er í minnihluta, hafði gert á fundi bæjarstjórnar í gær, að samþykkt hefði verið að ráða Vilhjálm sem bæjarstjóra án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur.

Vilhjálmur ráðinn bæjarstjóri án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur – „Ég skil ekki alveg hvert við erum að fara í þessum efnum“

Um ráðninguna skrifar Guðný:

„Leggja á fram gögn um ráðninguna í bæjarráði á fimmtudag sem síðan fer þá aftur til bæjarstjórnar til samþykktar. Skrítin vinnubrögð og óþarft að leggja slíkt fram í gær enda kusu bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar gegn málinu þar sem óábyrgt er að staðfesta ráðningu sem ekkert er vitað um, hvorki launakjör, önnur kjör, uppsagnarákvæði né nokkuð annað.“

Guðný Birna Guðmundsdóttir. Skjáskot/Youtube.

Eftir að ráðning Vilhjálms var samþykkt á fundi bæjarstjórnar tók hann til máls og sagði meðal annars að hann vildi vera bæjarstjóri allra bæjarfulltrúa. Miðað við orð Guðnýjar er ljóst að sú viðleitni byrjar ekki vel gagnvart minnihlutanum:

„Nýkrýndur bæjarstjóri tók það svo upp með sjálfum sér að gera sjálfur breytingar á bæjarmálasamþykkt án aðkomu þverpólitískrar forsetanefndar sem sér formlega um allar breytingar á samþykktinni. Byrjar vel.“

Augljóst er að Guðný Birna meinar hér orðin „byrjar vel“ í kaldhæðni.

Segir Guðný Birna að umræddar breytingar hafi snúist um að gera breytingar á nefndum og að tilnefna embættismann til að vera varabæjarstjóri í stað formanns bæjarráðs líkt og áður. Hún nefnir ekki hver umræddur embættismaður sé en ekki er ólíklegt að þar sé um að ræða bæjarlögmann:

„Það er greinilega þétt samstarf og traust milli fimm manna sjálfstæðisflokks og eins manns miðflokks sem er reyndar eini miðflokkurinn á Íslandi sem komst í meirihluta. Sem sagt, á fyrsta fundi, lagt fram ráðningu sem enginn veit neitt um og krotað track changes í leiðarvísi bæjarstjórnar. Merkilegt nokk.“

Íslenski fáninn og Reykjanesbær

Guðný furðar sig að lokum á því sem Vilhjálmur tók upp á eftir að bæjarstjórnarfundinum lauk:

„Svo í lok fundar tók nýi bæjarstjórinn niður fána Reykjanesbæjar til að flagga íslenska fánanum. Ég veit eiginlega ekki hvað er best að segja þannig að ég upplýsi bara í staðinn. Vona að þið eigið bara geggjaðan dag.“

Í gærkvöldi eftir að bæjarstjórnarfundinum lauk vakti Vilhjálmur raunar sérstaka athygli á því í Facebook-færslu að hann hefði dregið íslenska fánann að húni um leið og hann fagnaði því að vera formlega orðinn bæjarstjóri:

„Í kosningabaráttunni lofuðum við því að íslenski fáninn yrði dreginn að húni við Ráðhús Reykjanesbæjar á fyrsta degi nýs meirihluta. Að loknum bæjarstjórnarfundinum gengum við því út og efndum það loforð.“

Á myndinni af Vilhjálmi draga íslenska fánann að húni er fáni Reykjanesbæjar ekki sjáanlegur. Á myndinni er aðeins að sjá eina flaggstöng fyrir framan ráðhúsið. Á mynd af ráðhúsinu á Já.is má sjá fjórar flaggstangir og allar með fána Reykjanesbæjar en óljóst er hvort það sé venjan að flagga alltaf fána bæjarins á þeim öllum. Sú mynd er hins vegar augljóslega eldri en myndin sem tekin var af Vilhjálmi í gær en ekki sést í hinar flaggstangirnar á þeirri mynd.

Í myndbandi á Facebook-síðu Sjálfstæðisflokksins er einnig vakin sérstök athygli á að íslenski fáninn hafi verið dreginn að húni við ráðhúsið og þar er fylgst með Vilhjálmi gera það. Á myndbandinu sést í tvær aðrar flaggstangir og á annarri þeirra er greinilega fáni en það sést ekki hvaða fána er um að ræða. Ungur Sjálfstæðismaður sem kynnir sig ekki með nafni orðar í myndbandinu loforðið um flöggun íslenska fánans eilítið öðruvísi en Vilhjálmur:

„Við lofuðum því að flagga íslenska fánanum frá fyrsta degi og hér er Villi Bæjó að klára það.“

Undir myndbandinu hljómar tónlist en þó ekki þjóðlegt ættjarðarljóð heldur lagið Fortunate Son með bandarísku hljómsveitinni Creedance Clearwater Revival en í laginu, sem kom út 1969, er deilt á stríðrekstur Bandaríkjanna í Víetnam og það að menn úr vel stæðum fjölskyldum með góð sambönd hefðu sleppið við herskyldu og þar með að vera sendir í stríðið. Í athugasemd er Sjálfstæðismönnum bent á að í ljósi texta lagsins sé þetta eilítið óheppilegt lagaval:

„Fjallar um falska þjóðerniskennd þeirra sem veifa fánanum en bera enga raunverulega byrði.“

#byrja #ekki #segir #vel #vilhjálm

Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/6/3/segir-vilhjalm-ekki-byrja-vel-tok-nyi-baejarstjorinn-nidur-fana-reykjanesbaejar-til-ad-flagga-islenska-fananum/

📰 Aðrar fréttir

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
📅 18.10.2026 👁️ 1
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni
Mynd Þjóðinni kemur ekki mikið við hvað þingmenn gera
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, 
meistara­nám og flott starf - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, í fjórum vinnum, meistara­nám og flott starf - Vísir
Eins og saga dagsins gerir sannarlega. Í dag kynnumst við konu – Auði Hrefnu Guðmundsdóttur – varð ólétt 17 ára, átti þá kærasta sem fékk krabbamein, ...
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
📅 18.10.2026 👁️ 0
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum
Hverjir standa að óeirðunum í Frakklandi? Sjónum beint að róttækum vinstrihópum og alþjóðlegum tengslanetum Fréttin18. október 2026InnlendarLeave a Co...
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
📅 18.10.2026 👁️ 0
Viðvaranir vegna hvassviðris um landið allt
Spáð er vaxandi sunnan- og suðvestanátt í dag með vindhraða upp á 18-23 metra á sekúndu víða. Gular viðvaranir eru víða vegna hvassviðris en einnig er...
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 1
Hörð á­tök lög­reglu og mót­mælenda í París - Vísir
Í París kom til harðra átaka fram á kvöld við óeirðalögreglu sem beitti táragasi og vatnsbyssum á mannfjöldann. Kveikt var í byggingum í París og víða...
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
📅 18.10.2026 👁️ 0
Police officer shot in foot in Nottingham city centre
A firearm has been recovered by officers after a man and a woman fled the scene, detectives say.
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
📅 18.10.2026 👁️ 0
Tveir bókstafir sem urðu að milljörðum
Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósam...
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vest­fjörðum - Vísir
Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum. „Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Eink...
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Á­fram blautt og hvasst með gulum við­vörunum - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að kröpp lægð suðvestur í hafi fari allhratt norðaustur og verði skammt vestur af landinu seinnipartinn. Þá sé búis...
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
📅 18.10.2026 👁️ 0
Rússar skutu niður 126 úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg
Rússnesk yfirvöld segjast hafa skotið niður úkraínska dróna nærri Sankti Pétursborg í dag. Drónarnir hæfðu olíustöð og röskuðu flugi á einum umferðarþ...
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 0
Einn hand­tekinn vegna líkams­á­rásar í mið­bænum - Vísir
Tilkynnt var um einn í miðbænum með „hníf á lofti“ á skemmtistað. Hann var einnig handtekinn. Í dagbók kemur fram að einn hafi verið vistaður í nótt í...
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
📅 18.10.2026 👁️ 0
NHS faces more challenging winter than normal, health secretary warns
Yvette Cooper has announced £140m investment in England's urgent care system, after summer heatwaves piled pressure on the NHS.
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 2
Popúl­ismi og ein­angrunar­hyggja ógnar lofts­lagsað­gerðum - Vísir
Johan Rockström er forstöðumaður Potsdam-loftslagsstofnunarinnar í Þýskalandi og vistfræðingur. Hann var leiðandi afl í að búa til ramma um vísindaleg...
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
📅 18.10.2026 👁️ 2
Höfuðborgarsvæðið: 35% fleiri brot vegna gruns um fíkniefnaakstur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skráði 1.311 brot vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fyrstu níu mánuði ársins 2026. Það er 35% fjö...
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
📅 18.10.2026 👁️ 2
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“
Ísland „í miðpunkti breytinga á jörðinni“ Heim­ur­inn er kom­inn yfir sjö af níu þol­mörkum jarðar. Pró­fess­or­inn Johan Rockström segir þró­un­ina á...
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
📅 18.10.2026 👁️ 2
Köstuðu steinum og bensínsprengjum að óeirðalögreglu
Í Tirana, höfuðborg Albaníu, sló í brýnu á milli mótmælenda og lögreglu í gær, fimmta daginn í röð.Mótmælendurnir, sem flestir eru mennta- og háskólan...
Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
📅 18.10.2026 👁️ 3
Bjarga órangútanöpum frá eldum í Indónesíu
Fjölda órangútanapa hefur verið bjargað á síðustu vikum frá miklum skógareldum sem geisa í Indónesíu.Mengun af völdum eldanna hefur dreifst víða um Su...
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
📅 18.10.2026 👁️ 3
Drónar sem skotnir voru niður í landhelgi Rúmeníu líklega rússneskir
Rúmenskar F-16 orrustuþotur skutu niður tvo dróna sem flugu yfir Svartahafi innan rúmenskrar landhelgi í gær. Þetta hefur þýski fréttamiðillinn Deutsc...
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
📅 18.10.2026 👁️ 3
A wave of homemade, synthetic drugs sweeps US and deepens crisis
BBC News hears from users, dealers, prison and recovery workers as the country battles with a deadly new drug epidemic.
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
📅 18.10.2026 👁️ 5
JD Vance kennir innflytjendum um óeirðir í Frakklandi
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna telur innflytjendur í Frakklandi eiga sök á ofbeldi í mótmælaöldunni sem riðið hefur yfir franskar borgir. Þetta se...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
📅 18.10.2026 👁️ 5
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 36 milljóna króna verðlaun
Sílesk-bandaríski rithöfundurinn Isabel Allende hlaut í vikunni milljón evra spænsk bókmenntaverðlaun fyrir bók sem hún skrifaði undir dulnefninu Luz ...
Isabel Allende skrifaði bók undir dulnefni og hlaut 136 milljóna króna verðlaun

Deaths confirmed in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 4
Deaths confirmed in major fire at Canada military base
Number of casualties unknown in "very, very active and delicate" situation in Alberta, says defence minister.
Several dead or injured in major fire at Canada military base
📅 18.10.2026 👁️ 2
Several dead or injured in major fire at Canada military base
Officials have not given a cause or death toll, citing the "very active and delicate" situation at Canadian Forces Base Wainwright.
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
📅 18.10.2026 👁️ 4
Segir Trump ætla að kanna áhrif þess að gera hlé á viðskiptaþvingunum
Donald Trump Bandaríkjaforseti setti viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi á ís til að kanna hvaða afleiðingar það myndi hafa fyrir efnahag Bandaríkjanna ...
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
📅 18.10.2026 👁️ 4
Watch: Moment historic French town hall spire collapses in flames amid protests
An historic town hall in the southern French city of Limoges was set ablaze during national protests.
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
📅 18.10.2026 👁️ 4
Three takeaways from Elon Musk's latest political donations
New filings show the world's richest person spent this summer again trying to help Republicans win office, with most of his focus on one candidate.
How The Traitors' music plays with your emotions
📅 18.10.2026 👁️ 3
How The Traitors' music plays with your emotions
It's not just treachery and villainy - the soundtrack for Traitors helps set the show's campy tone.
Rígurinn á milli kók og pepsí og rannsóknir Samkeppniseftirlitsins
📅 18.10.2026 👁️ 2
Rígurinn á milli kók og pepsí og rannsóknir Samkeppniseftirlitsins
Í gegnum tíðina hefur samkeppnisrígurinn á milli fyrirtækjanna Vífilfells, sem í dag heitir CCEP, og Ölgerðarinnar tekið á sig ýmsar spaugilegar myndi...
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
📅 18.10.2026 👁️ 4
There's a crackdown on sports piracy - but is it already out of control?
The sports industry's lucrative business model is being undermined by dodgy TV sticks and illegal streaming links, writes Theo Leggett.
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Siggi Bond og Birta Huld trú­lofuð - Vísir
Þau greina frá tíðindunum í færslu á Instagram.  „Hún sagði JÁ,“ skrifar Sigurður, yfirleitt kallaður Siggi Bond. Birta Huld er hársnyrtir hjá Session...
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
📅 17.10.2026 👁️ 4
Newspaper headlines: 'French protests become violent' and SAS men 'arrested for murder'
The Times reports soldiers accused of murder were sent into war zones while still under police investigation.
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
📅 17.10.2026 👁️ 4
The Diane Watson playground murder: Trauma, loss and a love that endured
Diane Watson's best friend Pauline recalls a shocking school murder and its lasting legacy.
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biður Jón afsökunar á ummælum sínum
Grímur Grímsson þingmaður Viðreisnar bað í kvöld Jón Gnarr afsökunar á ummælum sem hann lét falla í útvarpsþættinum Vikulokum í dag. Grímur segist haf...
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Grímur biðst afsökunar á klaufalegum svörum sem Jón Gnarr upplifði sem persónuárás
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, hefur beðið fyrrum kollega sinn úr þingflokknum afsökunar á ummælum sem féllu í Vikulokunum á Rás 1 í morgun.Þa...
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Barn og full­orðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knatt­spyrnu­völl - Vísir
Bandaríska sjónvarpsstöðin KWCH hefur eftir lögreglumanninum Aaron Moses að ökumaðurinn sé í gæsluvarðhaldi og að engum stafi lengur ógn af ökumanninu...
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
📅 17.10.2026 👁️ 4
Kona sem var skotin í íþróttahöll í gær lést af sárum sínum
Kona á þrítugsaldri sem var skotin í íþróttahöll í Suður-Stokkhólmi í gærkvöld er látin. Hún var flutt á sjúkrahús með alvarlega áverka í gærkvöldi og...
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Landtökumenn réðust á evrópska erind­reka - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og segir að belgísk stjórnvöld hafi fordæmt árásina, sem beindist meðal annars að aðalræðismanni Belgíu í Ísrae...
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
📅 17.10.2026 👁️ 4
North Korea: What satellite images reveal about Kim Jong Un's summer retreat
Satellite images give clues about how Kim spends his holidays - something far out of reach for most North Koreans.
Biður Jón af­sökunar - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Biður Jón af­sökunar - Vísir
Grímur sagði í Vikulokunum á Rás 1 í dag að þingnefnd um málefni barna með fjölþættar stuðningsþarfir, sem Jón fór fyrir, hefði ekki komið saman undan...
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
📅 17.10.2026 👁️ 4
Dubois vs Wardley 2: Londoner retains title with dominant second-round stoppage
WBO world champion Daniel Dubois underlines his status as Britain's leading heavyweight with a devastating second-round stoppage of Fabio Wardley.
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
📅 17.10.2026 👁️ 4
How day of protests unfolded as disorder breaks out across France
Demonstrations across the country turned violent, with cars and buildings set alight and shops ransacked.
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
📅 17.10.2026 👁️ 4
Fögnuðu 100 ára afmæli Ísaksskóla: „Maður lærir að vera góður og kurteis“
Nemendur, foreldrar og kennarar fjölmenntu í Ísaksskóla í dag í tilefni 100 ára afmælis skólans. Veggir voru fagurlega skreyttir með listaverkum nemen...
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
📅 17.10.2026 👁️ 4
Ummæli Gríms flokkist sem persónuárás
„Ég var nú eiginlega bara mjög hissa,“ segir Jón Gnarr, fyrrum þingmaður Viðreisnar, um ummæli Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar. Grímur sagði í ...
Anti-government protesters battle with police in Albania
📅 17.10.2026 👁️ 4
Anti-government protesters battle with police in Albania
There were violent clashes between demonstrators and riot police throughout Saturday in the capital Tirana.
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
📅 17.10.2026 👁️ 4
Hálf milljón tók þátt í mótmælunum í dag
Rúm hálf milljón tók þátt í mótmælunum í Frakklandi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu innanríkisráðuneytis Frakklands. Af þeim 550.000 sem mótmælt...
„Verið að spila með líf fólks“
📅 17.10.2026 👁️ 5
„Verið að spila með líf fólks“
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir Seðlabankann hafa gengið of langt með því að skapa viljandi efnahagsaðstæður sem auka at...
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ - Vísir
„Það er mikið dómsdagstal því það eru átök svo víða og mannréttindi eru brotin í stórum stíl. Við sjáum þessa nýju tilhneigingu til þess að valdamikli...
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
📅 17.10.2026 👁️ 4
Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð - Vísir
Þegar niðurstöður Pisa-rannsóknarinnar voru kynntar í byrjun september greindi Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra frá því að verja ætti fjögur h...