Valgerður Rúnarsdóttir, fráfarandi framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, segir að brottför Ragnheiðar Huldu Friðriksdóttur, fyrrverandi forstjóra samtakanna, hafi verið undirbúin. Hún segir einnig að stjórn SÁÁ hafi haft óeðlileg afskipti af faglegu starfi heilbrigðisþjónustunnar.
„Það má segja að þetta hafi komið sem þruma úr heiðskíru lofti fyrir okkur flest sem vorum að vinna inni í heilbrigðisþjónustunni hjá SÁÁ,“ sagði Valgerður í Kastljósi í kvöld.
Ragnheiður Hulda lét af störfum 5. ágúst eftir fund með formanni og varaformanni SÁÁ. Í framhaldinu hættu hún og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á meðferðarstöðinni Vík. Heimildir fréttastofu herma að auk þess séu fleiri starfsmenn komnir í veikindaleyfi.
Valgerður segir að stjórnendur heilbrigðisþjónustunnar hafi brugðist strax við þegar þeir fréttu af ákvörðuninni og sent stjórninni bréf þar sem varað var við þeirri áhættu sem fælist í því að forstjórinn færi með svo skömmum fyrirvara.
„Hún var ekki á leiðinni neitt út. Það vissu það allir sem vinna með henni í meðferðinni. Og allt í einu þá er hún komin út,“ sagði Valgerður.
Segir langan aðdraganda hafa verið að starfslokunum
Valgerður segir að ákvörðunin hafi ekki verið tekin á einum degi. „Ég hef séð sannanir fyrir því að þetta var ekki eitthvað sem gerðist þennan dag, bara alls ekki,“ sagði hún.
Hún segir stjórnina hafa haft ákveðnar hugmyndir um starfsemi SÁÁ og viljað að forstjórinn fylgdi þeim eftir. Ragnheiður hafi hins vegar sett fagleg mörk og þurft að forgangsraða verkefnum út frá heilbrigðisþjónustunni.
„Það var bara það mikil pressa á forstjórann að gera hluti eftir forskrift hjá þeim, og ég hef séð fyrirmæli í bréfi frá þeim þar sem það er algjörlega óviðeigandi hvað þau eru í raun og veru að skipa henni fyrir að gera,“ sagði Valgerður.
„Þannig það var í rauninni bara unnið að því að bola henni út, og ég veit það núna eftir á að það var langur aðdragandi að því. Ég hef líka séð sannanir fyrir því að þetta var ekki eitthvað sem gerðist bara þennan dag.“
Félagasamtök ráða forstjóra heilbrigðisþjónustunnar
Valgerður segir stöðuna vekja upp stærri spurningar um stjórnskipulag SÁÁ. Samtökin eru félagasamtök en reka á sama tíma heilbrigðisþjónustu sem lýtur lögum og eftirliti landlæknis og Sjúkratrygginga Íslands.
Aðalstjórn SÁÁ telur 48 manns en undir henni starfar 9 manna framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjórnin ræður forstjóra SÁÁ.
Valgerður segir óeðlilegt að fólk sem starfi ekki sjálft í heilbrigðisþjónustu beri ábyrgð á því að ráða og reka forstjóra heilbrigðisstofnunar.
Sterkur starfsandi í byrjun sumars
Auk Valgerðar hafa fagstjóri og yfirlæknir sagt upp störfum og fjöldi starfsmanna hefur lýst yfir vantrausti á formann og framkvæmdastjórn.
Valgerður segir starfsfólki líða illa og að starfsandinn hafi breyst hratt.
„Það var mjög sterkur og góður andi í byrjun sumars, við erum búin að vera í svo góðri stöðu og ánægð. Þannig það er allt annað uppi á teningnum.“
Hún segir óvissuna og álagið þegar hafa áhrif á þjónustuna. Færri séu á Vogi en æskilegt væri vegna manneklu og margra starfsmanna í veikindaleyfi.
Að hennar mati sé mikilvægt að tryggja að sú þekking sem byggst hafi upp innan heilbrigðisþjónustu SÁÁ glatist ekki. Hún segist þó áfram vera bjartsýn á að hægt væri að leysa deilurnar.
Myndir þú snúa aftur ef það næðist friður um þetta og sátt?
„Já, það er engin spurning um það, en ég sé ekki að það sé boðlegt að halda áfram að reyna að standa við skuldbindingar í þessari ábyrgðarmiklu heilbrigðisþjónustu ef það vantar allt sem fór með fyrrverandi forstjóra og enginn hefur fengið í hendurnar til þess að taka við.“
Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður stjórnar SÁÁ, verður í viðtali á morgun.