Þetta kemur fram í minnisblaði til skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar sem birt var í fundargerð ráðsins. Þar kemur fram að einn af þremur þáttum lögbundins eftirlits með daggæslu í heimahúsum er að fara í óboðaðar heimsóknir.
Úttektinni í óboðuðu heimsóknunum er skipt í þrennt, eftirlit án athugasemda, aðbúnaði barna ábótavant og svo barn telst í hættu statt.
Tvisvar sinnum voru gerðar athugasemdir undir þriðja liðnum og snéru bæði tilfellin að fjölda barna í vistun. Brugðist var hratt við athugasemdum eftirlitsaðila samkvæmt minnisblaðinu. Gera má ráð fyrir því að börnin hafi því verið umfram það sem leyfi kveður á um.
Þá sneru flestar athugasemdirnar, alls fjórtán, að öryggishnappi dagforeldra sem dagforeldrinu ber að hafa á sér á opnunartímum daggæslunnar.
„Tíu athugasemdir sneru að því að yfirfara þyrfti slökkvitæki, sex athugasemdir voru gerðar vegna innihalds sjúkrakassa og fimm athugasemdir voru gerðar vegna reykskynjara,“ segir í minnisblaðinu.
Dagforeldri hefur fimm virka daga til að gera athugasemdir við skýrsluna og ráðist það strax í úrbætur telst málinu lokið. Bregðist það ekki við er málinu fylgt eftir með heimsókn til dagforeldra innan þriggja vikna.
Í janúar 2025 voru 73 dagforeldrar með starfsleyfi til daggæslu á 51 starfsstöð. Þeim hefur fækkað á milli ára en í byrjun þessa árs voru dagforeldrarnir 69 starfandi á 47 starfsstöðum. Þar af voru átján starfsstöðvar þar sem tveir dagforeldrar voru saman og tvær þar sem þrír dagforeldrar störfuðu saman.