Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur til að undanþága Íslands frá ETS, kerfi Evrópusambandsins fyrir losunarheimildir í flugi, verði framlengd um þrjú ár. Undanþága sem var veitt fyrir rúmum þremur árum átti að renna út um áramótin. Íslensk stjórnvöld hafa lengi barist fyrir þessu.
Þorgerður Katrín Gunnardóttir utanríkisráðherra segir að áfram þurfi að vinna að varanlegri lausn.
„Það er náttúrulega mjög ánægjulegt að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hafi fallist á rök okkar Íslendinga um að framlengja þessari sérlausn innan ETS-kerfisins vegna flugs alveg til ársins 2030. Þetta dregur það kannski líka fram að blessaða Evrópusambandið, það er tilbúið til að koma til móts við sérstakar aðstæður þar sem þær eru til staðar.“
Ákvörðun Evrópusambandsins nú er tímabundin lausn en ekki varanleg. Hefði verið betra að ná fram varanlegri lausn?
„Jú, og það verður auðvitað haldið áfram að vinna að því þar sem kom í ljós í öllum okkar samtölum við framkvæmdastjórnina, okkar sem erum í ríkisstjórninni, að það þarf að vinna að því að framlengja þessari sérlausn til að vinna áfram að þeirri eðlilegu niðurstöðu að okkar mati, að okkar Íslendinga mati, að taka tillit til flugsamgangna en líka til annarra greina. Að því verður áfram unnið og við munum nota tímann fram til 2030 hvað þetta varðar.“
En hvað segir þetta okkur um samningaviðræður við Evrópusambandið? Fáum við bara skammtímalausnir?
„Nei, alls ekki og þetta einmitt dregur miklu frekar fram að Evrópusambandið er tilbúið til þess að skoða sérstakar aðstæður. Það er verið að tilkynna þessa sérlausn á sama tíma og framkvæmdastjórnin leggur fram tillögu um endurskoðun sína á ETS-kerfinu og við vitum ekki til þess að það séu dæmi þess að við Íslendingar höfum náð okkar málum fram svona snemma í ferlinu.“
En þetta er vissulega framlenging sem hefur verið náð fram áður?
„Já, en þú verður að athuga það að Evrópusambandið er að endurskoða ETS-kerfið og það er margt sem að þau eru að skoða betur og það að við þessa endurskoðun skuli strax vera tekið tillit til hagsmuna okkar Íslendinga er jákvætt en það þýðir líka að hagsmunagæslan hefur verið nokkuð grimm.“