Halla Gunnarsdóttir, formaður stéttarfélags VR, segir verðbólgutölur dagsins ekki auka bjartsýni fyrir haustið.
Segir hún að enn bendi allar spár til þess að forsendur kjarasamninga bresti og að hægt gangi að fá fyrirtæki til að axla ábyrgð.
„Stjórnvöld hafa gripið til einnar afgerandi aðgerðar, sem er verðþak á olíu, aðgerð sem bæði VR og Félag íslenskra bifreiðaeigenda börðust fyrir. Olíuverðþakið er að skila raunverulegum árangri, það gerir að verkum að verðbólgan utan frá, vegna stríðsástands í Miðausturlöndum, skellur ekki á almenningi á Íslandi af fullum þunga,“ skrifar Halla á Facebook.
Olíuverðþak skili raunverulegum árangri
Hún segir þetta útspil ríkisstjórnarinnar vera að virka og að þar með sé komið gott fordæmi um leið sem hægt er að fara til að taka á verðbólgunni.
„Í Svíþjóð hefur verið gripið til róttækra aðgerða og þar er engin verðbólga. Nú stendur yfir þríhliða samtal milli ASÍ, SA og ríkisstjórnarinnar um aðgerðir. Fyrirtækin verða að koma þar að borðinu og skuldbinda sig til að stöðva verðhækkanir,“ segir Halla.
Að lokum segir hún að skapa verði forsendur fyrir því að launafólk fallist á að segja ekki upp kjarasamningum og að í því skyni þurfi að draga til baka óhóflegar gjaldskrárhækkanir sveitarfélaga.