Enn er ekki búið að boða annan fund í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna en samtöl hafa átt sér stað símleiðis um helgina.
„Það eru samtöl í gangi en við erum ekki búin að ákveða næsta fund, það verður annaðhvort ákveðið seinna í kvöld eða á morgun,“ segir Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari í samtali við mbl.is.
„Fólk er að tala saman í símann og reyna að leita að einhverjum leiðum til að koma þessu í gang. Það er alls konar hljóð í fólki en annars ekkert að frétta, því miður.“
