Borgarstjórn samþykkti í dag tillögu meirihlutans um að hefja athugun á útvistun á rekstri Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. Menningar- og íþróttasviði borgarinnar verður falið í samráði við fjármála- og áhættustýringasvið að kortleggja rekstur garðsins og meðal annars leggja mat á kostnað borgarinnar af rekstrinum og hvort einkaaðilar hafi áhuga á að taka við honum með einhverjum hætti. Gert er ráð fyrir að þessari vinnu ljúki á fyrri hluta næsta árs.
Húsdýragarðurinn var opnaður árið 1990 og Fjölskyldugarðurinn þremur árum síðar. Fram kom í máli Bjarna Guðjónssonar borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks og formanni íþrótta- og útilífsráðs á fundi borgarstjórnar í dag að fjárframlög borgarinnar til garðsins á síðasta ári hafi numið 495 milljónum króna.
Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar og forseti borgarstjórnar sagði í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun að meirihlutinn horfi meðal annars til þess að efla garðinn í samstarfi við einkaaðila.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar greiddu atkvæði með tillögunni auk borgarfulltrúa Miðflokksins. Borgarfulltrúar Vinstrisins og Sósíalista greiddu atkvæði gegn tillögunni en borgarfulltrúar Samfylkingarinnar sátu hjá í atkvæðagreiðslunni.
Sósíalistar lögðu fram breytingartillögu um að athugun á rekstri garðsins feli ekki í sér mögulega útvistun til einkaaðila en sú tillaga var felld.