Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í dag 70 milljarða dala fjármögnun til harðra aðgerða Donalds Trump Bandaríkjaforseta í innflytjendamálum. Það samsvarar um 8.650 milljörðum króna, en það jafngildir tæplega tvöfaldri ársframleiðslu alls íslenska hagkerfisins.
Niðurstaðan lá fyrir eftir langan dag atkvæðagreiðslna um fjölmargar breytingartillögur sem varpa ljósi á innbyrðis deilur repúblikana um aðrar umdeildar stefnutillögur forsetans, að því er segir í umfjöllun AFP.
Frumvarpið myndi fjármagna útlendinga- og tollaeftirlit Bandaríkjanna (ICE) og landamæraeftirlitið út kjörtímabil Trumps og veita leiðtoga repúblikana þar með stóran sigur í einu af helstu baráttumálum sínum eftir margra mánaða harðar deilur um framtíð innflytjendaeftirlits.
Það fer nú til fulltrúadeildarinnar, þar sem leiðtogar repúblikana vonast til að afgreiða það snemma í næstu viku til að senda það á borð Trumps.
Pakkinn kemur í kjölfar sögulegrar lokunar á hluta heimavarnarráðuneytisins (DHS) fyrr á þessu ári, þegar demókratar neituðu að styðja nýtt fjármagn til innflytjendaeftirlits án takmarkana á aðferðum eins og áhlaupum á viðkvæmum stöðum og notkun gríma af hálfu lögreglumanna.
Repúblikanar höfnuðu þessum kröfum og kusu þess í stað að fjármagna ICE og landamæraeftirlitið með hraðferli sem kallast „fjárlagasátt“, sem gerir þeim kleift að sniðganga andstöðu demókrata ef þeir geta haldið eigin flokksmönnum sameinuðum.
Breytingatillögumaraþon
Atkvæðagreiðslan í öldungadeildinni fór fram eftir margra klukkustunda breytingatillögumaraþon, þekkt í Washington sem „vote-a-rama“, óskipulegt ferli sem gerir þingmönnum kleift að knýja fram atkvæðagreiðslur um pólitískt viðkvæm mál fyrir lokaafgreiðslu.
Fyrir Trump þýddi ferlið endurnýjaða athugun á deilumálum sem hafa valdið áhyggjum meðal meðlima eigin flokks, þar á meðal fyrirhugaðan „and-vopnavæðingar“-sjóð fyrir bandamenn sem halda því fram að þeir hafi verið beittir óréttlátum aðgerðum af hálfu stjórnvalda og 1 milljarð dala sem hafði verið eyrnamerktur öryggisgæslu í kringum fyrirhugaðan danssal hans í Hvíta húsinu.
Undirliggjandi innflytjendafrumvarp innihélt ekki lengur fjármagnið fyrir danssalinn, en bæði málin urðu tákn um víðtækari óánægju meðal repúblikana með að verja forgangsmál Trumps fyrir komandi miðkjörfundarkosningar sem búist er við að verði einkum undir áhrifum af áhyggjum kjósenda af framfærslukostnaði.
