Samgöngustofa hefur aflétt farbanni yfir skipinu Bandero, sem er í eigu Paul Watson og var notað til að trufla hvalveiðar í sumar.
Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn skipsins í júlí eftir að áhöfn Bandero sigldi án heimildar inn fyrir tólf mílna lögsögu landsins og ógnaði öryggi skipverja hvalveiðiskipsins Hvals 9. Skipið hefur síðan verið við höfn í Reykjavík og á Akranesi.
Bjarni Már Magnússon, lögmaður samtaka Paul Watson (Captain Paul Watson foundation), segir að farbanni skipsins hafi verið aflétt eftir að öllum nauðsynlegum pappírum var komið til Samgöngustofu.
Í síðustu viku hafi eftirlitsmaður með umboð frá stjórnvöldum í Panama komið og skoðað Bandero. Skipið siglir undir panamíska fánanum.
Gefið var út nýtt alþjóðlegt mælibréf fyrir skipið eftir heimsóknina og voru einnig sett um borð þau sjókort sem vantaði í skipið.
Hluta þeirra þurfti að panta sérstaklega frá Skotlandi þar sem prentarinn sem notaður er til að prenta slík kort hér á höfuðborgarsvæðinu var bilaður.
Skipið enn kyrrsett
Skipið er þó ekki á leið úr landi þar sem það er enn kyrrsett. Það gerði sýslumaðurinn á Vesturlandi eftir að Hvalur hf. krafðist þess. Fyrirtækið telur sig eiga skaðabótakröfu á hendur eiganda skipsins og fór fram á að það yrði kyrrsett sem trygging fyrir því að kröfurnar fáist greiddar.
Paul Watson og lögmenn hans hafa þó gagnrýnt málsmeðferð sýslumanns og þykir ljóst að það má sé á leið fyrir dómstóla. Endurupptökukröfu á kyrrsetningu skipsins var hafnað í síðustu viku. Bjarni Már segir líklegt að málið verði tekið fyrir í nóvember.
Síðasti áhafnarmeðlimurinn á leið úr landi
Unnið hefur verið að því að senda áhöfn Bandero úr landi eftir að hún sigldi skipinu inn fyrir tólf mílna lögsögu Íslands og gerði tilraun til að stöðva hvalveiðar þegar Hvalur 9 var á leið til veiða.
Helga, sem einnig er lögmaður skipverjanna, segir að síðasti áhafnarmeðlimurinn, af þeim 21 sem komu hingað til lands, verði sendur til Trínidad á morgun.