Talsverðar breytingar eru á fylgi flokkanna í Hafnarfirði frá síðustu sveitarstjórnarkosningum samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem kynnt var í oddvitakappræðum Vísis í dag. Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn eru saman í meirihluta en hann er fallinn samkvæmt þessari könnun.
Samfylkingin tekur fram úr Sjálfstæðisflokknum sem stærsti flokkurinn þrátt fyrir að báðir tapi fylgi frá síðustu kosningum. Samfylkingin fengi 24,2 prósent samkvæmt könnuninni en fékk 29,0 prósent í kosningum 2022. Þá fékk Sjálfstæðisflokkurinn 30,7 prósent en nú segjast 22,1 prósent myndu kjósa hann.
Viðreisn mældist með 22,4 prósenta fylgi í könnuninni en fékk 9,1 prósent í síðustu kosningum. Framsóknarflokkurinn myndi bæta fylgi sitt aðeins því hann færi úr 13,7 prósentum í kosningum í 14,9 prósent í þessari könnun.
Miðflokkurinn fengi tæp 9,7 prósent samkvæmt könnuninni en fékk 2,8 prósent í síðustu kosningum. Vinstrið mælist með 6,8 prósenta fylgi. Þar sameinast Vinstri græn og Vor til vinstri. Vinstri græn fengu 4,3 prósent í síðustu kosningum.
Könnunin var gerð 22. til 26. apríl.