Eiríkur Rögnvaldsson prófessor emeritus í íslensku gagnrýnir Hjört J. Guðmundsson stjórnmálafræðing og starfsmann Hagstofunnar fyrir að slíta orð Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra úr samhengi með grófum hætti. Hefur Hjörtur sem hefur beitt sér af krafti fyrir því að nei verði ofan á í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst dreift tilvitnun úr viðtali við Kristrúnu þar sem hún vitnar í kvótaeiganda sem segist ætla að segja já til að geta selt kvótann til útlendinga.
Sakar Hjört um að slíta orð Kristrúnar úr samhengi með grófum hætti - „Svona er auðvitað algerlega óboðlegt“