Söfnun er hafin fyrir fjölskyldu Steinunnar Lóu Hafþórsdóttur sem lést við barnsburð þann 19. maí síðstliðinn, aðeins þrítug að aldri.
Vinkonur hennar greindu frá andlátinu á samfélagsmiðlum. Steinunn var fædd árið 1996 og skilur eftir sig unnusta, Hjalta Einarsson, og stjúpdóttur, Amalíu Erlu.
Steinunn Lóa lést við fæðingu sonar síns. Hann dvelur nú á vökudeild Landspítalans vegna súrefnisskorts í fæðingu.
„Við vinkonur Steinunnar Lóu höfum ákveðið að setja af stað söfnun fyrir fjölskyldu hennar til að létta undir á þessum erfiða tíma, svo þau geti einbeitt sér að því sem skiptir mestu máli núna – að syrgja, standa saman og vera hjá litla drengnum sínum,“ segir í færslunni. „Fjölskyldan mun að öllum líkindum standa frammi fyrir miklum áskorunum og erfiðleikum í lífinu vegna þessa ólýsanlega áfalls. Framundan er langur og erfiður vegur, bæði andlega, tilfinningalega og fjárhagslega, og því viljum við leggja okkar af mörkum til að styðja þau í gegnum þennan tíma.
Hvert framlag, stórt sem smátt, skiptir máli og er dýrmætur stuðningur á þessum ótrúlega erfiðu tímum.“
Söfnunin fer fram á eftirfarandi reikning á nafni Hjalta:
Reikningsnúmer: 0702-15-053445
Kennitala: 120494-2799