Hafin er söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Kristinssonar sem drukknaði í kajakslysi á Skorradalsvatni 29. apríl síðastliðinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá vinum fjölskyldunnar.
Inga Dögg Kristinsdóttir var aðeins 44 ára gömul þegar hún lést. Hún skilur eftir sig tvo litla drengi, Björn fjögurra ára og Hauk tveggja ára, og eiginmann Véstein Valgarðsson.
Inga var frá Skarði á Skarðsströnd. Hún var tannsmiður að mennt, en vann lengst af við umönnun fatlaðra. Hún var mikill náttúruunnandi, bæði á sjó og landi, og eyjar Breiðafjarðar voru hennar paradís. Síðustu árin bjó hún á Hvanneyri í Borgarfirði þar sem Vésteinn eiginmaður hennar nam búfræði, en framundan hjá þeim hjónum var að hefja búskap.
Í tilkynningunni segir enn fremur:
„Skyndilegt fráfall Ingu Daggar er mikið högg fyrir Véstein og drengina þeirra Ingu Daggar og kallar á miklar breytingar á högum þeirra. Því vilja nánir vinir óska eftir stuðningi velunnara við fjölskylduna, því stuðningur núna getur skipt miklu fyrir framtíð drengjanna.“
Þeim sem vilja leggja þeim lið er bent á reikning nr. 1110-05-402788, sem Vésteinn er skráður fyrir, kt. 121180-3169.
Opnuð hefur verið Facebook-síða vegna söfnunarinnar sem nálgast má hér fyrir neðan.