Utanríkisráðuneytið: Ekki um nýjan hóp að ræða
Í svari utanríkisráðuneytis Íslands við fyrirspurn Vísis um samstarfið segir að fulltrúi varnarmálasviðs Landhelgisgæslunnar hafi tekið þátt á fundi fulltrúa frá flotum ríkjanna 22. apríl, þar sem ríkin hafi verið að efla með sér samstarf um eftirlit á hafi. Þetta samstaf sé liður í því.„Ekki er um að ræða nýjan hóp heldur var lögð áhersla á að skoða tækifæri til frekar samstarfs JEF ríkjanna hvað varðar eftirlit og sameiginlegt viðbragð á hafi, einkum Norður-Atlantshafi og norðurslóðum,“ segir í svari utanríkisráðuneytis Íslands
Sjá einnig: Norðurevrópskir bandamenn funda á Íslandi á næsta ári
Tekið er fram í svari utanríkisráðuneytisins að JEF hafi átt frumkvæði að slíkum sameiginlegum eftirlitsaðgerðum, m.a. NORDIC WARDEN árið 2023 þar sem eftirlit með neðansjávarinnviðum var aukið.„Aðgerðir JEF verða áfram undir stjórn aðgerðaherstjórnarinnar í Northwood í Bretlandi þar sem Ísland hefur útsendan borgaralegan fulltrúa. Af hálfu Íslands er sérstaklega horft til þess að samstarfið styrki eftirlit með neðansjávarinnviðum, siglingum skipa sem tilheyra hinum svokallaða skuggaflota og bæti upplýsingaskipti um öryggisáskoranir á hafi.“
„Megum engan tíma missa“
Hinn breski Jenkins sagði að helsta markmið þessa nýja samstarfs yrði að sporna gegn aukinni ógn frá Rússlandi.„Við vitum að við megum engan tíma missa, sem er ástæða þess að fyrir lok þessa árs, vonast ég til að við höfum öll skrifað undir formlega yfirlýsingu sem leggur grunninn að því sem verður ómissandi og langvarandi bandalag,“ sagði Jenkins á miðvikudag og bætti við að þessu bandalagi yrði ætlað að standa vörð um Norðvestur-Evrópu og norðurslóðir.Samvinna sjóherja þeirra þjóða sem koma að þessu samstarfi yrði aukin og flotar myndu æfa meira saman, senda starfsfólk sín á milli og reyna að nota sömu skotfærin, svo eitthvað sé nefnt. Markmiðið yrði að geta starfað sem ein heild. Þannig ættu sjóherirnir að geta brugðist við öllum ógnum á svæðinu með miklum hraða og getu.Fréttakona Sky hafði eftir Jenkins á miðvikudag að hann hefði lýst samstarfinu sem „fjölskyldu flota bandalagsríkja“. Saman yrðu þeir mun öflugri en annars.Samkvæmt frétt Guardian eiga Bandaríkin ekki að koma að þessu samstarfi en Kanada gæti mögulega gert það. Þar á bæ eru í það minnsta vangaveltur um að ganga til liðs við JEF en Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, sótti leiðtogafund JEF gegnum fjarfundabúnað í síðasta mánuði. Þá var aukið samstarf með Kanada til umræðu.Aukin spenna á norðurslóðum
Spennan hefur aukist nokkuð á norðurslóðum á undanförnum árum. Mikilvægi norðurslóða hefur aukist töluvert með hopandi hafís og opnun nýrra siglingaleiða milli Asíu og Evrópu, auk aukins áhuga á nýtingu á auðlindum á svæðinu.Sjá einnig: Setja tæpar tvær billjónir í freigátur frá Bretlandi Jenkins sagði að siglingum Rússa inn á hafsvæði sem Bretar stjórna hefði fjölgað um þriðjung á tveimur árum. Þá sögðu Bretar frá því fyrr í mánuðinum að rússneskir kafbátar hefðu nýverið verið notaðir til að kortleggja sæstrengi og aðra innviði Bretlandseyja neðansjávar.Sjá einnig: Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í NorðursjóBretar hafa fjallað mikið um öryggi á norðurslóðum en tilkynnt var fyrr á þessu ári að til stæði að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir seinna á árinu. Floti þessi er iðulega skipaður af flugmóðurskipi, tveimur fylgiskipum (freigátu og tundurspilli), einum kafbáti og olíuflutningaskipi.HMS Prince of Wales er annað tveggja flugmóðurskipa Breta og flaggskip breska flotans. Skipið er hannað til að bera 48 F-35B Lightning II herþotur. Það eru þotur sem geta tekið á loft, næstum því lóðrétt og þurfa ekki langar flugbrautir.Skipið getur einnig borið þyrlur og hýst 250 landgönguliða. Áhöfn skipsins er frá 700 til sextán hundruð, eftir því hver margar flugvélar eru um borð og í hvaða verkefnum áhöfnin er.