Tónleikagestir Bergmáls á Þingvöllum verða að skilja regnhlífarnar og tjaldstólana eftir heima. Það er að beiðni lögreglu en viðburðahaldari segir að ráðstafanir hafi verið gerðar til að tryggja að fólk geti hvílt sig á tónleikunum.
Ákvörðunin var tekin sökum þess að stóla og regnhlífar er hægt að nota sem vopn eða barefli.
„Við gerum því viðeigandi ráðstafanir til þess að forðast að slíkir hlutir rati inn á svæðið. Það er einnig sjónarmið að ef það kemur til þess að það þurfi að rýma svæðið með skömmum fyrirvara þá geta slíkir hlutir skapað hættu við þessar aðstæður,“ segir Íris Edda Heimisdóttir, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi.
Von er á um 20 þúsund gestum á Þingvelli á laugardag.
Lögregla tók ákvörðunina í samráði við bæði viðburðahaldara og þá sem sjá um gæslu á tónleikunum. Íris Edda segir samstarf við hlutaðeigandi um skipulag tónleikanna hafa verið með ágætum.
„Það verður vopnaleit þar sem miðaskannanir verða á vegum gæslunnar, þar sem slíkir hlutir verða fjarlægðir. Á þessum miðapóstum, sem gæslan sér um, erum við að leita að öllu sem má nota eða hægt er að nota sem vopn eða er skilgreint sem vopn,“ segir Íris Edda.
„Vel skal vanda þar sem lengi skal standa“
Jakob Frímann Magnússon, einn skipuleggjenda Bergmáls, segir viðburðahaldara hafa lausnir við banni á tjaldstólum og regnhlífum.
„Við ætlum að hafa svipaðan hátt á og við höfðum í Vaglaskógi, þar sem við vorum með vörubretti sem var staflað upp og menn gátu tyllt sér og notað sem borð og hvíldarstað. Svo verða einnig stólar á svæðinu þar sem þar sem menn geta tyllt sér, fyrir utan veitingasvæðið sem er náttúrulega með gríðarlegan fjölda af stólum. Þannig við mætum þörfum allra,“ segir Jakob Frímann.
Hann tekur undir að samstarf um skipulag hafi gengið vel og segir útlit fyrir að 20 þúsund miðarnir á hátíðina muni seljast upp.
„Lögregla hefur átt mjög gott frumkvæði að ýmsum málum. Við hittumst reglulega 25 manna hópur, 1-2 tvisvar í viku, og förum yfir alla þætti málsins. Það er mér til efs að það hafi jafnmargir umferðarstjórar, gæsluliðar, lögreglumenn og öryggisverðir verið saman komnir á einum stað og á þessari komandi hátíð. En vel skal vanda þar sem lengi skal standa – frá 11 að morgni til miðnættis.“
Viðbúið er að umferð verði þung í kringum þjóðgarðinn á laugardaginn. Tónleikagestir hafa þar af leiðandi verið beðnir um að huga vel að því hvernig þeir komast til og frá Þingvöllum.
Jakob Frímann segir tónleikagestum vitanlega óhætt að taka með sér nesti.
„Svo er lögreglan mjög afslöppuð og ekkert að fara að beita neinni hörku. Það á ekkert að fara að leita að einhverjum Sómasamlokum í buddunum hjá fólkinu. En það eru auðvitað aðilar sem eru komnir þarna til þess að reyna að tryggja fæðuöryggi, svo það sé nú sagt,“ segir Jakob Frímann og vísar þá til matarvagna sem verða á svæðinu.
Engar regnhlífar en no large umbrellas
Það er athyglisvert að á vef tónleika Bergmáls segir að ekki megi taka regnhlífar né tjaldstóla á hátíðina að beiðni lögreglu, en aðeins þegar vefsíðan er stillt á íslensku.
„Af öryggisástæðum heimilar lögregla hvorki tjaldstóla né regnhlífar á tónleikasvæðinu,“ segir þar orðrétt. Sé vefsíðunni snúið á ensku er hins vegar önnur fyrirmæli að finna, að bannað sé að taka með sér stórar regnhlífar eða „large umbrellas“. Á ensku síðunni stendur reyndar einnig að óheimilt sé að koma með utanaðkomandi mat og drykk, þar með talið áfengi.
Fréttastofa spurði lögreglu hvort bann við regnhlífaburði á tónleikunum hefði aðeins náð til stórra regnhlífa. Hún segir svo ekki vera.
„Það er ekkert farið í neinar frekari útlistanir eða skýringar á því heldur bara heilt yfir að stólar eða regnhlífar fari ekki inn á svæðið,“ segir Íris Edda.