Söngskólinn í Reykjavík flytur um þessar mundir í nýtt húsnæði að Grensásvegi 3 en skólinn hefur síðustu ár verið til húsa við Laufásveg 49-51.
Hjónin Leó Árnason og Þórunn Guðmundsdóttir keyptu húsið fyrir tveimur árum síðan, en til stendur að færa það í fyrra horf sem tvær íbúðir og selja á ný.
Viðskiptablaðið greindi frá því árið 2024 að sögufrægt hús söngskólans hefði verið selt fyrir 370 milljónir. Það var upprunalega reist sem tvö íbúðarhús, oft kallaðar Sturluhallir, árið 1920 af bræðrunum Sturlu og Friðriki Jónssonum en þau voru síðar sameinuð.
Húsið er um 786 fermetrar og stendur á 1.442 fermetra lóð.
Breska sendiráðið hafði í mörg ár aðsetur sitt í húsinu en Söngskólinn í Reykjavík keypti svo Sturluhallir af afkomendum Friðriks árið 2018 fyrir 250 milljónir króna og flutti skólinn starfsemi sína í húsið sama ár.