Stofnfundur félagsins Ung gegn ESB-aðild verður á þjóðhátíðardegi Íslendinga á morgun á Hótel Borg klukkan 17 til 19.
Í fréttatilkynningu segir að félagið sé stofnað í samvinnu og að frumkvæði forystufólks og fyrrum forystufólks úr ungliðahreyfingum stjórnmálaflokka sem telja hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins.
Eru það Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS), Samband ungra framsóknarmanna (SUF), Ungir Miðflokksmenn, Ung Vinstri Græn (UVG) og Roði – Ungir sósíalistar.
Þverpólitískur vettvangur
„Markmiðið með stofnun og starfsemi félagsins er að skapa breiðan, þverpólitískan vettvang ungs fólks sem vill að Ísland standi utan Evrópusambandsins. Meginmarkmið félagsins verður að beita sér fyrir því að tillaga um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu, sem lögð verður í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst nk., verði felld,“ segir í tilkynningunni.
Félagið sé óháður vettvangur sem taki ekki afstöðu til annarra pólitískra álitaefna.
„Starf félagsins mun einvörðungu snúa að umræðu um aðild Íslands að Evrópusambandinu, áhrifum aðildar á fullveldi og auðlindir þjóðarinnar, efnahagsmál og hagsmuni Íslands til framtíðar.“
Halda viðburði og gefa út efni
Félagið muni halda viðburði, gefa út efni og taka þátt í ESB-umræðunni, allt á grundvelli þess að ræða hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snúist í raun um: umsókn um aðild að Evrópusambandinu, sem óhjákvæmilega feli í sér vilja til inngöngu í sambandið.
Framsögumenn á fundi morgundagsins verða Birgir Ármannsson, lögmaður, fyrrverandi þingmaður og forseti Alþingis, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Steinþór Logi Arnarson, formaður Ungra bænda.