Kjaraviðræður Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) verða unnar af yfirvegun næstu vikurnar að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair.
Samningsaðilar skrifuðu í morgun undir sameiginlega yfirlýsingu um framhald kjarasamningsviðræðna. Unnið verður samkvæmt verkstýrðri áætlun ríkissáttasemjara að nýjum kjarasamningi undir friðarskyldu.
„Það er mjög ánægjulegt að við skyldum ná þessari lendingu og fara af yfirvegun í þetta verkefni næstu vikurnar,“ segir Bogi í samtali við mbl.is.
Búin að vera ákveðin ókyrrð
Viðræður hafa lítið þokast áfram að undanförnu og hljóðið við samningsborðið var orðið „þungt og erfitt“ að sögn Ástráðs Haraldssonar ríkissáttasemjara. Nú virðist sem öldurnar séu að lægja í viðræðunum.
„Það er búin að vera ákveðin ókyrrð og við erum núna í hábjargræðistímanum þannig þetta var farið að hafa áhrif á starfsfólk víða innan fyrirtækisins,“ segir Bogi.
„Það er mikilvægt að við náum samningum sem bæði tryggir að Icelandair verði áfram mjög eftirsóttur vinnustaður sem býður upp á góð starfskjör en á sama tíma að við séum samkeppnishæf til þess að grípa tækifærin sem fram undan eru.“
Friðarskyldan komi á stöðugleika
Nokkrum flugferðum félagsins hefur verið aflýst vegna mönnunarvanda á undanförnum vikum. Bogi segir að friðarskyldan ætti að koma í veg fyrir að það haldi áfram.
„Það er náttúrulega þannig í flugrekstri að það getur alltaf eitthvað komið upp á og í maí í fyrra flugum við 98,7% af áætluðum flugferðum. Núna flugum við 98%, þannig það var 0,7% viðbót við niðurfellingar miðað við í fyrra.“
„Þessi yfirlýsing og þessi friðarskylda í samningnum eiga að tryggja ákveðinn stöðugleika hjá okkur.“
Andar ekki köldu milli starfsfólks og stjórnar
Hann segir að heilt yfir sé andrúmsloftið mjög gott innan fyrirtækisins og að ekki andi köldu milli starfsfólks og stjórnarliða.
„Það hefur þó í hreinskilni sagt farið aðeins á verri veg hvað varðar flugmannahópinn og það er eitthvað sem við þurfum að vinna í.“
Í yfirlýsingunni segir að meginmarkmiðið sé að semja um endurnýjun kjarasamnings fyrir 15. september 2026. Bogi segist vongóður um að það náist.
„Já, ég er alltaf bjartsýnn og við erum með vel skilgreinda viðræðuáætlun sem báðir aðilar skrifuðu undir og sáttasemjari lagði fram þannig að ég er bjartsýnn á að þetta gangi eftir. Verkefnið fer ekkert frá okkur,“ segir hann að lokum.
