Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, tókst að koma í veg fyrir árás sem ráðgerð var á UFC-bardagakvöldinu sem haldið var á afmælisdegi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta við Hvíta húsið á sunnudaginn. Kash Patel, forstjóri FBI, greindi frá þessu á X í gærkvöld. Upp komst um fyrirhugaða árás fjórum dögum fyrir viðburðinn.
Í frétt breska ríkisútvarpsins BBC kemur fram að fimm menn hafi verið handteknir samkvæmt upplýsingum bandaríska dómsmálaráðuneytisins. Mennirnir ætluðu að gera árásir með sprengjudrónum og ráðast á mikilvæg skotmörk við Hvíta húsið og á háttsetta einstaklinga.
Meðal þeirra sem mennirnir ætluðu að ráðast á voru Bandaríkjaforseti, JD Vance varaforseti, forsætisráðherra Ísraels Menjamin Netanyahu, billjónamæringurinn Elon Musk og fleiri háttsetta einstaklinga.
Mennirnir ætluðu að skapa ringulreið og hræðslu með árásinni og fæla áhorfendur í skotlínu leyniskyttna. Síðari hluti árásarinnar átti að vera innrás í gegnum hliðið við Hvíta húsið.
Talið er að allt að 4.300 gestir hafi verið viðstaddir bardagann en þeim hafði öllum verið boðið sérstaklega á viðburðinn. Þá voru um 85 þúsund áhorfendur sem fylgdust með viðburðinum skammt frá.
Móðir eins kom upp um ráðagerðina
Fyrsti maðurinn sem var handtekinn, Tycen C Proper, er 19 ára gamall og búsettur í Ohio. Móðir hans lét lögregluyfirvöld vita en hún veitti því athygli að hann hefði keypt fjöldann allan af skotvopnum og hafði séð til netsamskipta sem hann átti við hóp af fólki sem virtist vera fyrrum hermenn og strangtrúaðir kristnir menn.
Hinir mennirnir voru handteknir í Kaliforníu, Missouri og Nebraska og eru á þrítugs og fertugs aldri.
Mennirnir eiga allir yfir höfði sér lífstíðardóma og allt að 250.000 dollara sekt, verði þeir sakfelldir um morðsamsæri. Proper fékk auk þess þrjár aðrar ákærur, þar með talið að fremja ofbeldi á lóð Hvíta hússins en hámarksrefsing við því er fimm ár í fangelsi.