Vegavinnu í Ártúnsbrekku er haldið áfram í kvöld og fram á nótt.
Eins og fram kom fyrr í vikunni vinnur Vegagerðin að malbikun miðjuakreinar Ártúnsbrekkunnar til austurs í vikunni. Í tilkynningu Vegagerðarinnar segir að malbikunin eigi að standa yfir frá klukkan 19 í kvöld til klukkan 6 í fyrramálið.
Áður hefur Morgunblaðið fjallað um lélegt ástand akreinarinnar.
Fleiri verkefni standa til í vikunni
Vegagerðin hefur einnig gefið heimild til fleiri verka í vikunni ef veður leyfir.
Malbikað verður á Vesturlandsvegi í vesturátt við Laxalón frá klukkan 19 til klukkan 4 aðfaranótt 19. júní.
Einnig verður malbikað í Ártúnsbrekku í vesturátt við N1 frá klukkan 23 til 4 aðfaranótt 19. júní. Áætlað er svo að fræsa á Reykjanesbraut í suðurátt frá Kaplakrika frá klukkan 20 til klukkan 4 sama dag.



