„Icelandair hóf í byrjun mars á þessu ári sölu á óáfengum drykkjum á almennu farrými á Norður-Ameríkuleiðum.“
Þetta kemur fram í svari Icelandair við fyrirspurn mbl.is.
Áfram verður boðið upp á vatn, kaffi og te án endurgjalds en kolsýrt vatn og bragðbætta gosdrykki verður nú að greiða fyrir.
Í apríl í fyrra tilkynnti flugfélagið að ekki yrði lengur boðið upp á slíka drykki ókeypis í flugleiðum Icelandair til og frá Evrópu.
Í takt við þróunina
Úrval drykkja um borð hefur verið aukið um leið að því er kemur fram í svari Icelandair. Orkudrykkir og ávaxtadrykkir eru þar nefndir sem dæmi.
„Breytingin er í takt við þá þróun sem sést víða í flugrekstri þar sem farþegar geta valið úr fjölbreyttara úrvali vara og þjónustu eftir eigin þörfum.“
„Hún er jafnframt hluti af áframhaldandi vinnu Icelandair við að þróa vöruframboð sitt og styrkja rekstrargrundvöll félagsins með því að draga úr kostnaði og skapa auknar tekjur, án þess að skerða þá grunnþjónustu sem farþegar njóta um borð.“