Borgarráð samþykkti í síðustu viku að segja upp samningi um tæplega fjögur þúsund fermetra svæði í Gufunesi undir nýja hjólhýsabyggð og ekki stendur til að finna byggðinni aðra lóð. Formaður borgarráðs segist ekki vilja að börn alist upp í hjólhýsagörðum í Reykjavík.
„Allir voru í sjokki og voru reiðir“
Samningurinn var gerður við Samtök hjólabúa, félagasamtök þeirra sem vilja búa í húsbílum eða hjólhýsum, og undirritaður af fyrri borgarstjórn skömmu fyrir sveitarstjórnarkosningar. Samningurinn átti að tryggja 3900 fermetra svæði í Gufunesi til tveggja ára undir hjólhýsabyggð – en borgarráð samþykkti í síðustu viku að rifta honum.
„Allir voru í sjokki og voru reiðir. Og sumir grátandi þess vegna líka,“ segir Lilja Karen Norðquist Jónsdóttir, íbúi í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða.
Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs, segir umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar ekki hafa gefið út afnotaleyfi vegna hjólhýsa, hvorki við Sævarhöfða né í Gufunesi. Hjólhýsabyggð eigi ekki að vera húsnæðisúrræði í Reykjavík.
„Þetta er ekki lögmætt. Það er bannað að skrá fasta búsetu í hjólhýsi. Og það er líka bannað að tjalda utan skilgreindra tjaldsvæða. Svo er það bara líka mín skoðun að ég vil ekki að börn og fjölskyldur alist upp í hjólhýsagörðum í Reykjavík,“ segir Einar.
Illa staðið að samningagerð
Í umsögn borgarlögmanns frá því í mars kemur fram að svæðið hafi ekki verið auglýst opinberlega öðrum til umsóknar, ekki sé tilgreint hvaða ástæður búi að baki því að samið sé án auglýsingar og ekki sé nægilega skilgreint hver heimil notkun svæðisins er. Þá sé ekki að finna í tillögunni hvort fyrirhugaður samningur sé í samræmi við gildandi skipulagsáætlanir fyrir svæðið.
Einar segir að illa hafi verið staðið að samningnum og því ekki stætt á öðru en að rifta honum.
„Þetta var keyrt í gegn rétt fyrir kosningar, algjörlega ófjármagnað. Kostnaður upp á hátt í 100 milljónir og leiguverðið fyrir þetta svæði átti að vera 200 þúsund krónur á ári. Samningurinn var mjög vondur og það er í grunninn mjög sorglegt að þessu fólki hafi verið gefnar þessar væntingar þegar þeir sem gerðu þennan samning máttu vita að hann yrði aldrei efndur.“
Ekki standi til að finna byggðinni nýjan stað
Síðustu þrjú ár hefur hjólhýsabyggðin verið á iðnaðarsvæði við Sævarhöfða í Reykjavík. Fimmtán búa þar í fjórtán hjólhýsum.
„Aðstoðin, það er svolítið langt í hana, umhverfið er ljótt og mikil umferð. Maður heyrir í hverjum einasta bíl og hverri einustu manneskju sem labbar fram hjá. Mikið ryk sem kemur frá umferð og safnast hérna. Þetta er náttúrulega bara ógeðslegt, sko,“ segir Lilja Karen.
Mikilvægt sé að borgin finni byggðinni nýjan stað.
„Og við fáum annaðhvort svæði eins og með Gufunesið eða fáum að vera í Laugardalnum og borgum þá miklu meira. Laugardalnum er skipt í tvennt og þar er alveg hægt að gera ákveðið svæði fyrir okkur. Og við erum alveg tilbúin til þess að borga fyrir það,“ segir Lilja Karen.
Einar segir ekki standa til að finna byggðinni nýjan stað.
„Þetta er endanleg niðurstaða.“