Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að hafa orðið þrítugri dóttur sinni að bana í samverknaði við eiginmann sinn, sagði heilbrigðisstarfsfólki að eiginmaður hennar hefði ráðist á þær mæðgur. Þetta kom fram við aðalmeðferð í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Mancel gaf sjálf skýrslu þegar aðalmeðferð hófst á föstudag og sagði fjölskylduna hafa komið til landsins til að deyja saman. Hugmyndin væri til komin því eiginmaður hennar væri með banvænan sjúkdóm.
Eiginmaður og dóttir Mancels fundust látin í hótelherbergi á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní í fyrra. Aðalmeðferð hófst á föstudag og í dag voru teknar skýrslur af heilbrigðisstarfsfólki og lögreglumönnum.
Sjúkraflutningamaður og tveir heilbrigðisstarfsmenn á Landspítalanum sögðu Mancel hafa verið hljóðláta og rólega þegar hún fékk aðhlynningu á vettvangi og á sjúkrahúsi.
Einn þeirra sagði að hún hefði virst stjörf og í sálrænu losti. Hún var með sýnilegt sár á bringu sem grunur lék á að væri stungusár.
Notaði orðið „árás“ við sjúkraflutningamann
Samkvæmt skýrslum þeirra á sínum tíma sagði Mancel að eiginmaður hennar hefði ráðist á hana. Þau sögðust ekki muna nákvæmt orðalag hennar en fullyrtu að hún hlyti að hafa lýst tildrögum áverka sinna á þá leið fyrst skýrslur gæfu það til kynna.
Annar sjúkraflutningamaðurinn kvaðst hins vegar viss um að hún hefði notað enska orðið „attack“ og því verið skýrt að hún ætti við að eiginmaður hennar hefði ráðist á þær mæðgur.
Mancel hefur áður sagt að hún hafi ætlað að svipta sig lífi með því að stinga sig í hjartað. Eiginmaður hennar hafi stungið hana en ekki hitt í hjartað.
Við aðalmeðferð í dag voru einnig teknar skýrslur af lögreglumönnum sem voru á vettvangi og farið yfir rannsóknir á ýmsum gögnum. Einn þeirra sagði að blóðdropar hefðu verið víðs vegar í herberginu þegar lögregla kom á vettvang og að þar hefði verið mikil óreiða. Annar sagði að merki væru um að einhver hefði reynt að þrífa upp blóð.
Lögreglumaður í tæknideild sagði það hafa vakið athygli hans að mikill meirihluti blóðsins sem fannst hafi verið storknað.
Til skoðunar að sviðsetja atburðarásina
Meðal þess sem kom fram var að til skoðunar væri að framkvæma prófun á rithönd á svokölluðu kveðjubréfi. Ekkert hafi hins vegar orðið af því meðal annars vegna þess að enginn rithandasérfræðingur starfi á Íslandi og enginn samningur hefur verið gerður um framkvæmd slíkra rannsókna erlendis.
Þá hafi einnig staðið til að sviðsetja atburðarásina á hótelherbergi sambærilegu því sem feðginin fundust í. Sakborningur hafi hins vegar ekki treyst sér til þess.
Myndbandsupptökur úr eftirlitsmyndavélum voru einnig notaðar við rannsóknina. Lögreglan sagði að fjölskyldan hefði sést á upptöku eftir að hafa borðað á veitingastað nálægt hótelinu. Af upptökum að dæma hefði maðurinn ekki verið sjáanlega veikur.
Vilja sjá ítarlegri símagögn
Símar í eigu Mancel og fjölskyldu hennar voru einnig skoðaðir við rannsókn málsins. Að sögn lögreglu kom ekkert fram við skoðun á gögnum úr þeim sem myndi varpa ljósi á atburðarásina. Einn sími sem fannst á hótelherberginu er sagður hafa verið endurstilltur (e. factory reset) þannig að öllu hafi verið eytt út af honum nokkrum dögum áður.
Dómari gerði athugasemd við að upplýsingar úr rafrænum gögnum væru af skornum skammti og var óskað eftir því að þær upplýsingar yrðu lagðar til.