Ungliðahreyfingar fimm stjórnmálaflokka hafa tekið saman höndum og ætla að stofna félagið Ung gegn ESB-aðild. Formlegur stofnfundur félagsins verður á Hótel Borg á morgun klukkan 17. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.
„Félagið er stofnað í samvinnu og að frumkvæði forystufólks og fyrrum forystufólks úr ungliðahreyfingum stjórnmálaflokka sem telja hagsmuni Íslands best borgið utan Evrópusambandsins. Það eru Samband ungra Sjálfstæðismanna (SUS), Samband ungra Framsóknarmanna (SUF), Ungliðahreyfing Miðflokksins, Ung Vinstri Græn (UVG) og Roði - Ungir Sósíalistar,“ segir í tilkynningunni.
Á stofnfundinum verður lögð fram ályktun til samþykktar. Birgir Ármannsson, fyrrverandi forseti Alþingis, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Steinþór Logi Arnarson, formaður Ungra bænda, halda stutt erindi á fundinum sem verður öllum opinn.
Ungliðahreyfingar á öllu pólitíska litrófinu
Í fréttatilkynningunni segir að markmiðið með stofnun og starfsemi Ung gegn ESB-aðild sé að skapa breiðan, þverpólitískan vettvang ungs fólks sem vilji að Ísland standi utan Evrópusambandsins. Félagið beiti sér fyrir því að tillaga um aðildarumsókn að ESB, sem lögð verði fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst, verði felld.
Ungliðahreyfingarnar sem standa að baki Ung gegn ESB-aðild eru á öllu pólitíska litrófinu, allt frá vinstri vængnum og yfir á hægri vænginn. Í fréttatilkynningu kemur fram að félagið sé óháður vettvangur að öðru leyti en að beita sér gegn aðild að Evrópusambandinu og það taki ekki afstöðu til annarra pólitískra álitaefna.
„Starf félagsins mun einvörðungu snúa að umræðu um aðild Íslands að Evrópusambandinu, áhrifum aðildar á fullveldi og auðlindir þjóðarinnar, efnahagsmál og hagsmuni Íslands til framtíðar. Félagið mun halda viðburði, gefa út efni og taka virkan þátt í umræðunni, allt á grundvelli þess að ræða hvað þjóðaratkvæðagreiðslan snýst í raun um; umsókn um aðild að Evrópusambandinu, sem óhjákvæmilega felur í sér vilja til inngöngu í sambandið.“