Dr. Marienne Rasmussen, einn af stofnendum steypireyðarverkefnisins, segir mikið hafa sést til steypireyða í og við Skjálfandaflóa síðustu daga.
Steypireyðarverkefnið er rannsóknarverkefni við Háskóla Íslands sem hrint var af stað árið 2008 af þeim Mariu Iversen og Marienne Rasmussen. Markmið verkefnisins hefur verið að auka vitneskju um hvali í útrýmingarhættu með mismunandi aðferðum.
Höfum enn takmarkaða vitneskju
Fram kemur á vefsíðu háskólans að til að mynda hafi verið notast við ljósmyndagreiningu einstakra hvala, hljóðupptökur, genasýni og hegðunar- og ætisskráningar.
„Við höfum enn mjög takmarkaða vitneskju um stærsta dýr jarðríkis, steypireyðina. Við vitum ekki hvert þeir fara, hvar þeir dvelja mestmegnis af árinu eða hvar þeir geta af sér,“ segir Marienne.
Þekkja einstaklinga með ljósmyndum
Hún segir að hægt sé að þekkja einstaka hvali með því að ná ljósmyndum af þeim.
Til dæmis sást steypireyður í Skjálfandaflóa á síðustu dögum sem sást síðast til þar árið 2008, fyrir 18 árum. Marienne segist ekkert geta vitað hvar þessi einstaklingur hefur varið öllum þessum árum.
Annað dýr sem nýlega sást til hefur ekki sést í Skjálfandaflóa síðan fyrir 12 árum, árið 2014.
Einnig hafa rannsakendur nýlega séð til steypireyðar sem kom fyrst til Skjálfandaflóa árið 2009. Þá er þetta níunda sumar dýrsins í flóanum.
