Víkingahátíðin í Hafnarfirði hófst í dag, þetta er 29. skiptið sem hátíðin er haldin en hún stendur yfir í 6 daga.
Þar verða að vana mættir í kringum 250 víkingar og geta gestir og gangandi stoppað við og látið reyna á sig í víkingaleikum, bogfimi, axarkasti og spjótkasti.
Jökull Tandri Ámundason, jarl víkingafélagsins Rimmugýgjar, segir mikla tilhlökkun og spennu ríkja í kringum mótið. Tilvalið sé að setjast í brekkuna fyrir neðan Víðistaðakirkju og horfa á glímumótið 20. júní.
Hér sést Jökull Tandri Ámundason, Jarl, með stærðarinnar drykkjarhorn, við hlið hans stendur heldur nútímalegur víkingur.
mbl.is/Eggert Jóhannesson

















