Málið var þingfest í dag en maðurinn er ákærður fyrir nettælingu og kynferðislega áreitni gegn barni fyrir áðurtalda háttsemi. Atvikin sem um ræðir áttu sér stað á tímabilinu frá ágúst 2020 til október sama árs.
Samkvæmt því er fram kemur í ákærunni mun maðurinn hafa í nokkur skipti sett í samband við stúlkuna í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat og eftir atvikum í gegnum aðra samfélagsmiðla.
Hann er einnig ákærður fyrir að hafa í nokkur skipti er hann hitti stúlkuna kysst hana tungukossi auk þess sem hann kleip að minnsta kosti einu sinni í rass hennar utanklæða.
Farið er fram á að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Þar að auki er sú krafa gerð af hálfu stúlkunnar að maðurinn verði dæmdur til að greiða henni 2,5 milljón króna í skaðabætur.