Nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar hefur beint þeim tilmælum til forstöðumanna allra stofnana bæjarins að draga íslenska fánann að húni við húsnæði stofnana.
Þetta segir Vilhjálmur Árnason, sem tók við embætti bæjarstjóra fyrir skemmstu, í samtali við mbl.is.
Nýr bæjarstjórnarmeirihluti hafði þegar dregið fánann að húni við ráðhús bæjarins og auk þess er fáninn á húni við allar aðkomuleiðir inn í bæinn. Er því óhætt að segja að bærinn sé nú þakinn íslenska fánanum.
Beðnir um að taka fánann ekki niður
Segir Vilhjálmur það hafa áherslumál hjá sér að fáninn yrði sýnilegur í bænum.
„Þetta hefur verið áherslumál til þess að skapa fallegri og skemmtilegri aðkomu að bænum og íslenski fáninn er sameiningartákn og stolt okkar Íslendinga.“
Hefur forstöðumönnum stofnana verið gefinn tími til 17. júní til þess að draga fánann að húni og þeir beðnir um að taka hann ekki niður að þjóðhátíðardeginum liðnum.
Bæjarbúi vakti athygli fyrir skrifin
Breytingar voru gerðar á fánalögum nýverið sem gera það að verkum að heimilt er nú að flagga íslenska fánanum allan sólarhringinn yfir sumartímann.
Vilhjálmur vann að gerð frumvarpsins er hann var formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis en frumvarpið gerir flöggunina töluvert einfaldari.
„Breytingin á fánalögunum hjálpar mikið til. Ég er svolítið ánægður að hafa fengið að koma að því, þetta var eitt af mínum lokaverkefnum á þinginu. Það er orðið miklu meiri flöggun en áður, bara í minni götu held ég að það séu þrír eða fjórir fánar. Ég flaggaði strax 1. maí heima hjá mér og hef ekki tekið fánann niður,“ segir bæjarstjórinn.
Kveikjan að frumvarpinu voru greinarskrif Steinþórs Jónssonar, eiganda Hótel Keflavíkur, í Morgunblaðinu í október á síðasta ári en hann hvatti þingmenn þá til að gera breytingar á lögunum.