Atvikavaktinni var ýtt úr vör í dag, nýju skráningarformi sem heldur utan um slys, óhöpp og atvik í ferðaþjónustu á einfaldan og samræmdan hátt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Atvinnuvegaráðuneytinu. Með Atvikavaktinni er markmiðið að efla öryggi, gæði og fagmennsku í ferðaþjónustu hér á landi.
Munu fyrirtæki sjálf sjá um skráningu í kerfið að kostnaðarlausu og með notkun þess fá betri yfirsýn yfir stöðu öryggismála og með því geta brugðist við varhugaverðri þróun áður en hún leiðir til slysa.
Læra af reynslunni
„Atvikavaktin byggir á einfaldri hugmynd – að læra af reynslunni.“
Bent er á að sambærilegt verklag hafi tekist vel í öðrum atvinnugreinum. Samræmd skráning atvika gefur kost á betri yfirsýn yfir áhættuþætti, tækifæri til að greina mynstur og býr til grunn fyrir betri forvarnir og umbætur.

