Valdimar Gunnarsson, íþróttakennari frá Bíldudal og verkefnastjóri Allir með, lauk í vikunni sínum síðasta vinnudegi og var kvaddur með pompi og prakt í Íþróttamiðstöðinni í gær.
Fram kemur í tilkynningu UMFÍ að Thelma Dögg Grétarsdóttir, íþróttafulltrúi hjá Íþróttasambandi fatlaðra, muni taka við hlutverki hans.
Í tilefni dagsins var sölum Íþróttamiðstöðvarinnar við Engjaveg breytt í leikjagarð í anda Stjörnuleikanna, sem Valdimar hefur séð um á ferðum sínum um land allt síðustu 3 ár með það að markmiði að kynna íþróttir fyrir ungum iðkendum með ýmsar áskoranir og forráðafólki þeirra.
Langur og góður starfsferill
Valdimar hefur í gegnum tíðina komið að alls kyns íþróttaviðburðum og íþróttastarfi á landinu. Stýrði hann meðal annars unglingalandsmóti UMFÍ í Vesturbyggð fyrir 20 árum, var framkvæmdastjóri UMSK í mörg ár og síðustu þrjú ár verkefnastjóri Allir með.
Valdimar segist þó alls ekki vera að yfirgefa íþróttahreyfinguna. Mun hann stýra viðburði á unglingalandsmóti UMFÍ í sumar og sjá til þess að markaðsátakinu Allir með verði siglt úr höfn.

