Sædróni sprakk í höfninni í Constanța í Rúmeníu í morgun, skammt frá höfuðstöðvum sæbjörgunarstofnunar Rúmeníu. Reyk lagði frá hafnarkanti og fjölmennt björgunar- og lögreglulið var kallað á vettvang.
Yfirvöld segja ljóst að dróninn sé ekki rúmenskur og að hann virðist vera af tegund sem notuð hafi verið í stríðinu í Úkraínu, án þess að skýra það frekar eða segja hvort hann sé talinn úkraínskur eða rússneskur.
Einungis vika er síðan rússneskur sprengjudróni lenti á þaki fjölbýlishúss í borginni Galati í austurhluta landsins og tveir særðust.