James Milner hefur lagt skóna á hilluna eftir langan og farsælan feril í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Milner sem er fertugur sló leikjametið í ensku úrvalsdeildinni í vetur þegar hann lék sinn 654 deildarleik en alls urðu deildarleikirnir 664.
Frumraun Milner kom í leik með Leeds gegn West Ham í nóvember 2002.
Milner lék alls 903 leiki fyrir Leeds, Swindon, Newcastle, Aston Villa, Manchester City, Liverpool og Brighton.
Á ferlinum vann hann þrjá Englandsmeistaratitla, tvo með Manchester City og einn með Liverpool FC. Með Liverpool vann hann einnig Meistaradeild Evrópu árið 2019.
Milner lék sinn fyrsta landsleik fyrir England árið 2009 og spilaði alls 61 landsleik og skoraði eitt mark.