Knattspyrnumaðurinn Federico Valverde, leikmaður Real Madrid á Spáni, hefur tjáð sig opinberlega í fyrsta skipti síðan hann slóst við Aurélien Tchouaméni á æfingu spænska liðsins.
Eftir mikið rifrildi þeirra á milli brutust út slagsmál með þeim afleiðingum að Valverde rotaðist og þurfti að fara á spítala.
„Ég fann fyrir miklum stuðningi eftir þetta atvik. Stundum koma svona hindranir í fótboltanum og lífinu.
Allt þetta mun hjálpa mér að verða enn betri fyrirliði á næstu árum og vonandi get ég haldið áfram hér hjá Real,“ sagði hann við AS.