Ryðgað flak gámaflutningaskipsins Víkartinds sem strandaði fyrir nær 30 árum við Háfsfjöru, austan Þjórsáróss á Suðurlandi, skagar nú upp úr flæðarmáli fjörunnar.
Skipið varð vélarvana snemma morguns úti fyrir Suðurlandi þann 5. mars 1997 og rak svo upp í fjöruna í miklu óveðri sem þá geisaði.
400 tonn af olíu endurheimt
Ekki tókst að koma skipinu aftur á flot eftir strandið en við tóku umfangsmikilar hreinsunaraðgerðir þá um sumarið, þar sem 400 tonn af olíu voru endurheimt úr skipinu sem var svo að mestu leyti rifið í brotajárn.