Rússar skutu 8150 langdrægum drónum að Úkraínu í maí og hafa þeir aldrei verið fleiri á einum mánuði, samkvæmt nýrri greiningu AFP-fréttaveitunnar á gögnum úkraínska flughersins.
Auk drónanna skutu Rússar rúmlega 200 eldflaugum að Úkraínu, samkvæmt samantekt daglegra skýrslna sem flugherinn birtir og þeim fjölgaði líka frá því apríl.