Alþjóðaólympíunefndin hefur aflétt keppnisbanni sem lagt var á Rússland eftir innrás landsins í Úkraínu. Rússnesk landslið mega því keppa á Ólympíuleikunum í Los Angeles sumarið 2028.
Í október 2023 ákvað alþjóðaólympíunefndin að banna þátttöku Rússlands á alþjóðlegum mótum. Bannið var sett á vegna ákvörðunar Rússnesku ólympíunefndarinnar um að taka íþróttasamtök á hernumdum svæðum Úkraínu undir sína lögsögu.
Samkvæmt nefndinni á það ekki lengur við og hefur hún því ákveðið að fella bannið úr gildi. Þó hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort Rússland megi nota þjóðfána sinn, þjóðarliti og þjóðsöng á Ólympíuleikum.
Örfáir rússneskir íþróttamenn hafa fengið að keppa á síðustu sumar- og vetrar ólympíuleikum. Þeir kepptu sem óháðir, hlutlausir keppendur eftir að sérstök nefnd lagði mat á hvort þeir hefðu sýnt stuðning við innrás Rússlands í Úkraínu á opinberum vettvangi.
Í tilkynningu Ólympíunefndarinnar segir að þrátt fyrir að banninu hafi verið aflétt ætli nefndin hvorki að halda viðburði í Rússlandi né bjóða rússneskum embættismönnum að sækja viðburði á sínum vegum.
Þá byggist val á rússneskum íþróttamönnum til þátttöku á leikunum ekki einungis á árangri þeirra í íþróttum, heldur einnig hvort þeir séu fyrirmyndir sem virði og styðji friðsælt samfélag í anda Ólympíusáttmálans.