Rússnesk stjórnvöld hafa brugðist hart við ákvörðun Breta sem gæti gert Úkraínumönnum kleift að framleiða langdrægar eldflaugar í eigin landi. Yfirvöld í Kreml segja Breta með þessu orðna beina þátttakendur í stríðinu og hóta að ráðast á þá staði þar sem eldflaugarnar verða framleiddar.Tilefni reiðinnar er heimsókn Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, til Kænugarðs í morgun, en þetta er fyrsta embættisferð hans erlendis frá því hann tók við embætti heima fyrir.
Rússar æfir yfir ákvörðun Breta – „Hella markvisst og reglulega olíu á eldinn“