Í fréttatilkynningu þess efnis segir að undanfarin ár hafi Rún gegnt starfi samskiptastjóra hjá Veitum, dótturfélagi Orkuveitunnar. Þangað hafi hún komið frá Landsbankanum þar sem hún hafi starfað í sjö ár sem sérfræðingur í samskiptamálum. Á árunum 2007 til 2015 hafi hún verið fréttamaður á fréttastofu Ríkisútvarpsins í erlendum fréttum.
Rún taki til starfa í utanríkisráðuneytinu í dag 1. september og muni starfa við hlið Ingileifar Friðriksdóttur, sem einnig sé aðstoðarmaður utanríkisráðherra.
Heiða Kristín Helgadóttir hefur sinnt starfi sérstaks ráðgjafa utanríkisráðherra vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi aðildaviðræður við Evrópusambandið undanfarna mánuði. Hún hefur nú látið af störfum hjá ráðuneytinu.