„Við fiskuðum vel í þessum túr og allt gekk eins og í sögu,“ segir Lýður Valgeir Jóhannesson, yfirstýrimaður á Harðbaki EA 3. Togarinn sigldi á bjartri nóttu inn Eyjafjörðinn og kom inn til Dalvíkur um klukkan fjögur.
Þar var landað úr togaranum, en siglingu svo haldið áfram inn til Akureyrar og lagst að bryggjunni við frystihús ÚA um miðjan morgun. Þar verður skipið bundið við kaja fram yfir sjómannadag og áhöfnin í kærkomnu fríi.
Guðmundur Ingvar Guðmundsson skipstjóri á Harðbaki og hans menn hafa róið stíft í vetur. Hver túr er að jafnaði 3-5 dagar og ellefu manna áhöfnin er þá í 2-3 vikna úthaldi.
Við förum þangað sem fiskinn er að fá
„Við förum þangað sem fisk er að fá og löndum þar sem styst er að fara hverju sinni af miðunum. Oft erum við á Dalvík, en svo höfum við á síðustu mánuðum líka landað í Þorlákshöfn, Hafnarfirði, Grundarfirði, Neskaupstað og Djúpavogi,“ segir Lýður Valgeir sem lengi hefur verið til sjós. Bæði hefur hann verið á Grundarfjarðarbátum, en síðustu árin hjá Samherja. Samstarf þeirra Lýðs og Guðmundar skipstjóra hefur verið langt og gott.
Togari Harðbakur EA á hægu lulli inn Pollinn á fallegum vormorgni.
Í síðasta túr, 16. til 21. maí, var Harðbakur í Berufjarðarál fyrir austan land og náði þar ufsa. Eftir það var farið á Lónsbugt og þaðan komið með reyting af ýsu, þorski og steinbít.
Summan var 76 tonn; fyrsta flokks fiskur sem fór strax í vinnslu. Í gær mátti sjá á vefnum marinetraffic.com fjölga skipum sem voru á þessari fiskislóð fyrir austan landið. Togarar frá Vestmannaeyjum og útgerðarstöðum á Austfjörðum voru þar áberandi.
Aftur á Austfjarðamið
„Ég reikna með að við förum aftur á svipaðar slóðir fyrir austan land eftir sjómannadagsstopp. Við munum fiska í sama sjónum. Núna höfum við svolítið verið að sverma fyrir ýsu, ufsa, kola og fleiru þannig enda nánast búnir með aflaheimildir okkar í þorski,“ segir Lýður sem lætur vel af sjómennskunni nú á vordögum. Í þessum síðasta túr í maí hafi verið rjómablíða allan tímann og gott í sjóinn.
Sumarstarf Hásetinn Haukur Eldjárn Kristjánsson hér með föggur sínar.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
„Þetta er fínt sjóskip; þægilegt og nett. Það fer vel með mannskapinn. Í janúar var skipið í viðhaldi en svo fórum við út aftur og í febrúar og mars var stundum bræla. Á fyrstu mánuðum ársins vorum við gjarnan fyrir sunnan land og vestan en annars erum við mjög oft hér fyrir norðan þar sem við höfum gjarnan fengið fínan þorsk,” segir Lýður Valgeir og að síðustu:
Ég hlakka til
„Já, mér finnst alltaf gaman á sjónum. Stoppin eru líka fín, en þegar fer að líða á þá daga hlakka ég aftur til þess að fara á sjóinn. Enda ekki amalegt; skipið er fínt og áhöfnin mjög samheldin,“ segir Lýður Valgeir sem hefur verið til sjós frá unglingsárum. Hann er úr Grundarfirði og af svonefndri Krossnesætt þar í sveit, en í henni eru minnst níu skipstjórar og stýrimenn.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.