Landsréttur staðfesti dóm héraðsdóms yfir þeim Snorra Guðmundssyni og Sverri Þór Gunnarssyni fyrir stórfeld tollalagabrot, en lækkaði hressilega mjög háar sektir sem héraðsdómur lagði á þá.
Sverrir er eigandi söluturnsins Drekans, sem og Piknik-keðjuna, en Snorri fyrrverandi eigandi Póló (fram til 2023), en þessar verslanir eru landsþekktar fyrir sölu á rafrettum og nikótínvörum. Brotin frömdu þeir tvímenningnar í gegnum félag sitt Áfengi og tóbak ehf. Smygluðu þeir til landsins vel á aðra milljón sígarettna og 5.400 pakkingum af reyktóbaki. Þessar tóbaksvörur tilgreindu þeir í tollskýrslum sem ýmist prótein eða pappír og komu þeir sér þannig undan greiðslu á tóbaksgjöldum sem nemur 740 milljónum króna.
Í héraði voru þeir Snorri og Sverrir dæmdir hvor um sig í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu sektar, hvor um sig að fjárhæð 1,1 milljarður króna, eða samtals 2,2, milljarðar.
Landsréttur staðfesti í dag skilorðsbundna fangelsisdómana en lækkaði sektina á hvorn fyrir sig niður í rúmlega 740 milljónir króna.
Landsréttur staðfesti líka dóm héraðsdóms um upptöku á eignum þeirra félaga, bankainnstæðum og fasteignum. Þar á meðal eru sumarhús í Bláskógabyggð, atvinnuhúsnæði í Stykkishólmi og einbýlishús í garðabæ. Upptækar bankainnstæður nema tæplega tvö hundruð milljónum króna.
Ítarlega dóma Landsréttar og héraðsdóms í málinu má lesa hér.
Athugasemd: Í fyrri útgáfu fréttarinnar var fullyrt að Snorri væri núverandi eigandi Póló. Það er ekki rétt og er beðist velvirðingar á missögninni.