Ríkisstofnanir hér á landi vinna þessa dagana að samræmdri innleiðingu gervigreindartóls Microsoft, Copilot, með það að markmiði að bæta opinbera þjónustu, efla starfsfólk, auka skilvirkni og styðja við ábyrga notkun gervigreindar í opinberri þjónustu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu en þar segir að verkefnið sé hluti af sameiginlegu átaki ríkisins til að byggja upp þekkingu, tryggja öryggi og samræma nálgun við nýtingu gervigreindar.
Copilot-leyfi eru hluti af nýlegum samningi ríkisins við Microsoft en samið var til þriggja ára.
Kemur ekki í stað mannlegrar dómgreindar
Lögð er áhersla á að gervigreindin styðji við daglegt starf, bæti gæði vinnu og spari tíma án þess þó að koma í stað mannlegrar dómgreindar.
Innleiðing Copilot fer fram í áföngum og verður innleidd í samræmi við undirbúning, þarfir og forgangsröðun stofnana. Nánari upplýsingar um tímasetningar og aðgengi verða birtar á vef Stjórnarráðsins eftir því sem verkefnið þróast.