Nú hafa venesúelsk yfirvöld tilkynnt að þau hafi fengið þrjú hundruð fjörutíu og sex milljónir dala, eða um frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til enduruppbyggingar eftir jarðskjálftana. Er þetta meðal þess sem fram kemur í franska fréttamiðlinum Le Monde.
Þar er einnig haft eftir Jorge Rodriguez, forseta þjóðþingsins, sem greindi frá því á Telegram að alls séu fimm þúsund sextíu og níu látnir en að flest dauðsföllin hafi orðið við strandlengjuna. Fjöldi slasaðra er talinn óbreyttur en sextán þúsund sjö hundruð og fjörutíu eru skráðir slasaðir. Þá hefur komið fram að flestir hafi þegar verið útskrifaðir af sjúkrahúsi.
Þá er greint frá því að Kristalina Georgieva, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hafi staðfest úthlutun fjármunanna og sagt á samfélagsmiðlinum X að stofnunin hefði „unnið með lykilaðilum að því að hjálpa Venesúela að fá aðgang að eigin fjármunum hjá sjóðnum vegna brýnna mannúðarþarfa“.
Um tuttugu þúsund manns sem misstu heimili sín í skjálftunum búa þessa stundina í yfirfullum búðum, þar sem margar skortir vatnsveitu og viðunandi hreinlætisaðstöðu, er fram kemur í umfjöllun Le Monde.