Markmiðið með kaupum Icelandair á 49% hlut í Fly Play Europe Holdco er að ná fram einföldun og hagræðingu í starfsemi Icelandair á Íslandi, segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair.
Tilkynnt var um kaupin í dag en Fly Play Europe Holdco á dótturfélag á Möltu með maltneskt flugrekstarleyfi. Kaupverðið nemur 686 þúsund bandaríkjadölum, eða 83,4 milljónum króna.
„Við erum að hætta rekstri á 757 vélum og 767 vélum hérna á Íslandi, sem hafa þjónað Icelandair mjög vel, og erum að innleiða Airbus vélar,“ sagði Bogi í kvöldfréttum Sjónvarps.
Icelandair tilkynnti nýlega að félagið hefði undirritað leigusamninga um leigu á samtals tíu Airbus þotum sem teknar verða í rekstur á næstu tveimur árum. Bogi segir að þá verði heildarfloti félagsins 20 Airbus vélar auk 20 Max véla.
„Það verða örfáar sjö-fimmur reknar hjá Loftleiðum í einhvern tíma. Það er bara hagræði í því að færa þá starfsemi eitthvað annað og einfalda starfsemina hér og vera með rekstur þessara eldri véla annars staðar og láta það ekki trufla starfsemina hér á landi,“ segir Bogi.
Bogi segist reikna með því að ráðnir verði erlendir starfsmenn á Möltu rétt eins og félagið hafi haft starfsmenn í Eistlandi og á Filippseyjum.
Spurður hvort kaupin geti komið eins og sprengja inn í kjaraviðræður við flugmenn sem nú standa yfir segir Bogi fjárfestinguna vera hugsaða til lengri tíma.
„Við kynntum fyrir tveimur árum markmið um vöxt félagsins til 2037 þegar félagið verður 100 ára. Við þurfum að fjölga flugvélum, við þurfum að fjölga fólki hér á Íslandi, styrkja innviði og auka sveigjanleika og þetta er bara hluti af þeirri vegferð.“