Ungmennin þrjú sem létust í bílslysi á Krýsuvíkurvegi aðfaranótt mánudags voru ungur maður fæddur árið 2005 og tvær stúlkur fæddar 2007 og 2009.
Þetta staðfestir Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Sævar segir lítið hægt að segja um rannsókn slyssins að svo stöddu. Fram undan eru yfirheyrslur vitna að slysinu.
„Við eigum eftir að ræða við vitni og fá þetta formlega fram en við höfum einhverjar hugmyndir og vitneskju um hvað gerðist,“ segir Sævar.
Bíllinn sem ungmennin voru í hafnaði utan vegar. Sævar vill ekki staðfesta hvort hraðaakstur hafi valdið slysinu. „Það er auðvitað eitt af því sem er verið að skoða. Það eru fjölmargir vinklar skoðaðir, það eins og hvað annað.“