Formaður félags eldri borgara segir að nýlögð komugjöld á þá sem þurfa að sækja þjónustu sjúkraþjáfara séu ekkert nema skattlagning á viðkvæman hóp í samfélaginu.
Við segjum frá því þegar Hákon VIII Noregskonungur sór embættiseið sinn í morgun og sömuleiðis frá árásum Rússa í Úkraínu en umfangsmiklar árásir voru gerðar á Kænugarð sjöttu nóttina í röð.
Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofu Sýnar mætir í stúdíó hádegisfrétta og fer yfir breytingarnar sem munu eiga sér stað í kjölfar þess að kvöldfréttar Sýnar leggjast af. Þá hefur Bjarki Sigurðsson fréttamaður rýnt í eldsneytisverðið í dag en það hækkaði á miðnætti þegar tímabundin heimild til lækkunar á virðisaukaskatti féll úr gildi. Bjarki fer yfir málið í beinni.
Í íþróttunum verður stórleikur KR og Víkinga í Bestu deildinni til umræðu en skemmdarverk voru unnin á stúkunni að Meistaravöllum í nótt. Þá lokar félagaskiptaglugginn í kvöld og svo gæti farið að landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson muni færa sig um set á Ítalíu.
Allt þetta og meira til í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.